Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Björn Bjarnason: Utanríkisráðuneytið fallið

Read Full Article →

Innlent | mbl | 7.3.2026 | 15:03 Björn Bjarnason: Utanríkisráðuneytið fallið Björn Bjarnason segir utanríkisráðuneytið fallið á fyrsta prófinu. mbl.is/Kristinn Ingvarsson Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Segir þýðingu í kvöldfréttum ranga: Engar undanþágur í boði Telur áhrif Viðreisnar algjör: „Viðreisn ræður för“ Segir tímasetninguna vonda Sigmundur: „Uppgjöf af hálfu ríkisstjórnarinnar“ Erlend íhlutun verður ekki liðin » Fleiri tengdar fréttir Utanríkisráðuneytið er fallið á fyrsta prófinu. Þetta skrifar Björn Bjarnason fyrrverandi ráðherra á heimasíðu sína þar sem hann greinir frá því að falleinkunnina fái ráðuneytið fyrir að bregðast höfuðskyldu stjórnvalda um óhlutdræga miðlun upplýsinga. Segir Björn regluna sérstaklega eiga við um upplýsingagjöf á vefsíðum sem ætlað sé að fræða almenning í aðdraganda kosninga. Í framhaldinu skrifar Björn (hlekkur á upplýsingasíðuna er frá mbl.is): Forsætisráðuneytið birti tilkynningu á vefsíðu stjórnarráðsins föstudaginn 6. mars 2026 um að ríkisstjórnin hefði samþykkt að leggja fyrir alþingi tillögu til þingsályktunar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið (ESB) og færi atkvæðagreiðslan fram 29. ágúst 2026. Frekari upplýsingar um efni þingsályktunartillögunnar væri að finna á sérstökum upplýsingavef um þjóðaratkvæðagreiðsluna . Tekur Björn fram að ráðuneytið haldi utan um upplýsingavefinn og tilgreinir því næst um hvað verði spurt auk svarmöguleika. „Á að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu?” Svarmöguleikar verði þessir: Já, halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Nei, ekki halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Textinn sem vekur spurningar Í kjölfarið bendir Björn á að ráðuneytið segi einvörðungu kosið „um hvort íslensk stjórnvöld eigi að halda áfram aðildarviðræðum við ESB sem þáverandi stjórnvöld ákváðu að setja á ís árið 2013“. Segir hann ríkisstjórnina telja áframhald aðildarviðræðna við ESB „svo viðamikið hagsmunamál að ekki komi annað til greina en að leita leiðsagnar þjóðarinnar í þeim efnum“. Sá texti sem Björn segir vekja spurningar eru þau ummæli á síðunni að segi þjóðin já verði framhald viðræðna staðfest á formlegri ríkjaráðstefnu milli Íslands og aðildarríkjanna. Þar sem aðildarumsókn Íslands teljist enn í gildi yrði í reynd hægt að taka upp þráðinn aftur verði niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslu sú að ákveðið yrði að ganga til áframhaldandi aðildarviðræðna við ESB. Í kjölfarið færu formlegar aðildarviðræður fram þar sem unnið yrði út frá samningsmarkmiðum sem Ísland hefði sett sér. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra, Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Inga Sæland félagsmálaráðherra, forystumenn ríkisstjórnarflokkanna, á blaðamannafundi í gær. mbl.is/Eyþór Ekki unnt að treysta ráðuneytinu Beinir Björn sjónum sínum einkum að því að ráðuneytið tali um að efnt verði til „formlegrar ríkjaráðstefnu“ sem staðfesti framhald viðræðnanna og hins vegar að „í reynd“ yrði hægt að taka upp þráðinn frá 2013 aftur af því aðildarumsókn Íslands frá 2009 teljist enn í gildi. Segir hann að um þetta atriði segi nánar á síðunni að þótt aðildarviðræðum hafi verið hætt 2013 hafi aðildarumsókn Íslands frá árinu 2009 aldrei verið dregin til baka. Þvert á móti hafi framkvæmdastjórn ESB staðfest að umsóknin sé enn í gildi eins og fram hafi komið í fréttum. Svo skrifar Björn: Þessi útlistun sýnir að utanríkisráðuneytinu er ekki unnt að treysta fyrir hlutlægri miðlun upplýsinga um þetta mál. Þarna er skautað fram hjá öllu sem þáverandi utanríkisráðherra, Gunnar Bragi Sveinsson, skýrði formanni ráðherraráðs ESB og stækkunarstjóra sambandsins frá í bréfi 12. mars 2015 um að það væri „bjargföst afstaða ríkisstjórnarinnar“ að ekki skyldi líta á Ísland sem umsóknarríki ESB og rétt væri að ESB lagaði verklag sitt að þessu. Prófdómurinn kveðinn upp Sjálft hafi ráðuneytið eftir þetta sagt það opinberlega að ríkisstjórnin hefði dregið umsókn sína til baka og því sé ekki nóg með að ráðuneytið skauti nú fram hjá bréfi þar um á upplýsingasíðunni heldur láti það einnig undir höfuð leggjast að geta um skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um aðildarviðræður Íslands við ESB sem Björn segir eitt ítarlegasta gagnið sem tekið hafi verið saman um þetta flókna mál. Sú skýrsla kom út í febrúar 2014 að beiðni ríkisstjórnar Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Klykkir Björn út með svofelldum orðum og falleinkunn: Óhlutdræg miðlun upplýsinga er jafnan höfuðskylda stjórnvalda og sérstaklega á vefsíðum sem ætlað er að fræða almenning í aðdraganda kosninga. Utanríkisráðuneytið fellur á fyrsta prófinu. Tengdar fréttir Ísland og ESB Segir þýðingu í kvöldfréttum ranga: Engar undanþágur í boði Telur áhrif Viðreisnar algjör: „Viðreisn ræður för“ Segir tímasetninguna vonda Sigmundur: „Uppgjöf af hálfu ríkisstjórnarinnar“ Erlend íhlutun verður ekki liðin » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Referendum scheduled for August 29 Leiki bikarmeistaranna frestað Björn Bjarnason: Utanríkisráðuneytið fallið Ari mætir aftur Segir alla pólitík vera að færast til hægri Umræðan Sópa, sópa, sópa Framsókn treystir þjóðinni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ford kominn í Rauðahafið: Gæti slegið tvö met Lúðvík orðinn 108 ára í mannsárum Stærsti vopnaframleiðandinn fjórfaldar framleiðslu Telja auglýsingu vera löglega Mest lesið Í gær Í vikunni Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Andlát: Özur Lárusson Lúðvík orðinn 108 ára í mannsárum Vænir Ölmu Möller um lygar Telja auglýsingu vera löglega Segir þýðingu í kvöldfréttum ranga: Engar undanþágur í boði Gul veðurviðvörun fyrir stærstan hluta landsins Sjálfstæðisflokkurinn mælist langstærstur Beðið eftir rekstrarleyfi landlæknis Gamla sendiráðið breytist mikið Andlát: Árni Árnason Lýsa eftir Marijus: Handtökuskipun í gildi Aldrei gerst að dögum sé bætt við Andlát: Eysteinn Helgason „Ég er ekki Jóhanna Sigurðardóttir“ „Allt sem hún sagði þarna er satt og rétt“ Gul viðvörun vegna hríðar og hvassviðris Tölvupósturinn var ekki mistök Ætlaði að aðstoða á slysstað en lenti á milli bíla Veðurstofan varar við tíðum eldingum Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Andlát: Árni Árnason Nýjast á mbl.is » Referendum scheduled for August 29 Leiki bikarmeistaranna frestað Björn Bjarnason: Utanríkisráðuneytið fallið Ari mætir aftur Segir alla pólitík vera að færast til hægri Umræðan Sópa, sópa, sópa Framsókn treystir þjóðinni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Með kíló af kókaíni falið í niðursuðudósum Líklega leggst skólahald af „Ég er ekki Jóhanna Sigurðardóttir“ Einn dalur verðmætari en hundrað Mest lesið Í gær Í vikunni Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Andlát: Özur Lárusson Lúðvík orðinn 108 ára í mannsárum Vænir Ölmu Möller um lygar Telja auglýsingu vera löglega Segir þýðingu í kvöldfréttum ranga: Engar undanþágur í boði Gul veðurviðvörun fyrir stærstan hluta landsins Sjálfstæðisflokkurinn mælist langstærstur Beðið eftir rekstrarleyfi landlæknis Gamla sendiráðið breytist mikið Andlát: Árni Árnason Lýsa eftir Marijus: Handtökuskipun í gildi Aldrei gerst að dögum sé bætt við Andlát: Eysteinn Helgason „Ég er ekki Jóhanna Sigurðardóttir“ „Allt sem hún sagði þarna er satt og rétt“ Gul viðvörun vegna hríðar og hvassviðris Tölvupósturinn var ekki mistök Ætlaði að aðstoða á slysstað en lenti á milli bíla Veðurstofan varar við tíðum eldingum Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Andlát: Árni Árnason

Share this article