Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra og ritstjóri Morgunblaðsins, er genginn fyrir ætternisstapann, 78 ára að aldri. Hrafnarnir telja Davíð einn af merkustu stjórnmálamönnum lýðveldissögunnar og að mikill árangur hafi náðst í að færa Ísland í frjálsræðisátt í valdatíð hans. Hröfnunum varð annars hugsað til þess í vikunni að sennilega ætti stjórnmálamaðurinn Davíð engan sinn líka í dag. Þeim varð hugsað til þessa þegar þeir lásu um að Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri hefði skrifað undir alþjóðlega viljayfirlýsingu um bann við útbreiðslu jarðefnaeldsneytis innan borgarmarkanna. Í borgarstjóratíð Davíðs kom sú tillaga fram að gera Reykjavík að kjarnorkuvopnalausri borg. Davíð var hrifinn af tillögunni en vildi stíga varlega til jarðar. Hann lagði því fram gagntillögu sem fól í sér að fyrst yrði eitt hverfi, Blesugróf eða Breiðholt, lýst kjarnorkuvopnalaust, og ef það tækist vel mætti skoða að bæta fleiri hverfum í hópinn. Þannig fjaraði það mál út. Huginn og Muninn er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi birtist fyrst í blaðinu sem kom út 4. september 2026.