Fiskistofa hefur úthlutað 78.876 tonnum af norsk-íslenskri síld til tíu útgerða samkvæmt reglugerð um breytingu á reglugerð um leyfilegan heildarafla og veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2025/2026 og almanaksárið 2026. Stærsti hlutinn, um 16.800 tonn fara til Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, 15.900 tonn fara til Ísfélags í Vestmannaeyjum, um 11.100 tonn til Brims og 8.200 tonn til Samherja. Úthlutunina má sjá á gagnasíðum Fiskistofu.