Landsréttur hefur staðfest dóm yfir Brynjari Joensen Creed fyrir kynferðisbrot gegn 15 stúlkum undir lögaldri. Yngsti þolandinn var 11 ára. Brynjar var dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar fyrir Héraðsdómi Reykjaness í maí í fyrra en í janúar árið áður staðfesti Hæstiréttur sjö ára fangelsisdóm yfir honum fyrir gróf kynferðisbrot gegn börnum. Brynjar hafði samskipti við þolendur í málinu í gegnum samfélagsmiðla, þá aðallega Snapchat. Þar átti hann í kynferðislegum samskiptum við stúlkurnar, sendi mörgum þeirra myndir af berum kynfærum sínum og myndbönd af honum að fróa sér. Hann bað nokkrar þeirra um kynferðislegar myndir á móti og fékk frá einhverjum þeirra gegn því að bjóða þeim áfengi, rafrettur eða kynlífshjálpartæki. Brynjar bar við minnisleysi um samskipti við stúlkurnar og kvaðst ekki velta fyrir sér aldri kvenna sem hann átti samskipti við. Það þótti Landsrétti afar ótrúverðugt. Fréttin hefur verið uppfærð.