Forstjóri atNorth á ekki von á að sala fyrirtækisins leiði til breytinga á starfsemi þess hér á landi. Bandaríska gagnaversfyrirtækið Equinix og kanadíski lífeyrissjóðurinn Canada Pension Plan Investment Board gengu frá kaupum í síðari hluta febrúar. AtNorth rekur þrjú gagnaver á Íslandi, í Reykjavík, Keflavík og á Akureyri, og níu til viðbótar í Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi. Partners Group keypti fyrirtækið í upphafi ársins 2022. Heildarvirði viðskiptanna nemur rúmlega 480 milljörðum íslenskra króna. Samkvæmt atNorth verður eignarhluti CPPIB 60% og hluti Equinix um 40%. Ekki liggur fyrir hve stór hluti atNorth var í eigu íslenskra hluthafa. „Félagið hefur vaxið og dafnað mjög mikið í eignartíð þeirra og mikið verið fjárfest. Nú er fyrirtækið hins vegar orðið það stórt og það fjármagnsfrekt að það var nauðsynlegt að fá nýja og enn sterkari aðila að borðinu,“ segir Eyjólfur Magnús Kristinsson, forstjóri atNorth. Engar breytingar á starfsemi „Þessir aðilar eru að koma inn til að halda uppbyggingu félagsins áfram. Félagið hefur þegar tryggt sér raforkusamninga víða um Norðurlönd. Þó svo að við séum búin að fjárfesta fyrir marga milljarða Bandaríkjadala þá mun sú fjárfesting vaxa enn frekar.“ Eyjólfur Magnús á ekki von á að breytingar verði gerðar á starfsemi atNorth hér á landi í kjölfar sölu fyrirtækisins. „Nema að því leytinu til að við fáum sterkari stoðir og gríðarlega öfluga fjárfesta. Það má heldur ekki gleyma því að 40% hlutur mun vera í eigu stærsta gagnaversfyrirtækis í heimi, sem er ákaflega mikil viðurkenning fyrir starfsfólk atNorth og þá vegferð sem það er búið að vera á. Auðvitað munum við náttúrulega nýta okkur þann aðgang sem þeir gefa okkur að þeirri tækni og samböndin sem þeir hafa í iðnaðinum til þess að ýta frekar undir uppbyggingu.“