Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Dópaður þegar hann barði æskuvin sinn í fangelsi

Read Full Article →

Fangi á Litla-Hrauni var fyrir helgi dæmdur til þriggja mánaða fangelsisvistar fyrir líkamsárás. Hann barði félaga sinn svo hann féll í gólfið og hélt síðan áfram að berja hann í höfuðið. Árásina framdi maðurinn í nóvember 2024. Hann og annar fangi voru inni í klefa þegar fangaverðir heyrðu háan hurðaskell um kvöldmatarleytið og sáu í myndavélum að einn fangi hafði ráðist á annan. Á upptökum mátti sjá manninn berja að minnsta kosti tíu hnefahöggum með hægri hendi. Óljóst er hve mörg þeirra enduðu á höfði æskuvinarins. Fanginn sem hlaut dóm fyrir helgi sagði að hann og æskuvinur hans hefðu verið að neyta lyfja á fangaganginum og undir áhrifum. Þá hefði félaginn sakað hann um að stela frá sér og rokið út. Upp úr því hefði komið til slagsmála. Dómarinn sagði yfir skynsamlegan vafa hafið að maðurinn hefði ráðist á meðfanga sinn, árásin hefði verið ofsafengin og maðurinn ætti sér engar málsbætur. Milli þess að maðurinn barði meðfanga sinn og dómur var kveðinn upp hlaut hann dóm vegna annarra brota. Þar var hann dæmdur í tveggja ára og þriggja mánaða fangelsi.

Share this article