Innlent | mbl | 1.3.2026 | 17:30 Meirihlutinn ekki að sinna því sem hann á að sinna Rúnar Freyr Gíslason. mbl.is/Eggert Jóhannesson Björn Diljan Hálfdanarson [email protected] Setja bókamerki Núverandi meirihluti í Reykjavík hefur ekki sinnt grunnþjónustu við íbúa nægilega vel að sögn Rúnars Freys Gíslasonar leikara en hann mun verma fimmta sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir komandi kosningar. „Þau eru bara ekki að sinna því sem þau eiga að sinna. Það gengur ekki upp að ár eftir ár þurfi foreldrar ungra barna að bíða mánuðum saman eftir því að fá leikskólapláss. Á meðan hækka öll gjöld,“ segir Rúnar í samtali við mbl.is. „Starfsmönnum borgarinnar hefur fjölgað um 24% síðustu fimm árin og það segir sig alveg sjálft þegar starfsmönnunum fer að fjölga, kostnaður eykst en þjónustan versnar, að það þarf eitthvað að gera í því,“ bætir hann við. Frétt af mbl.is Mikil endurnýjun hjá Sjálfstæðisflokknum Fór í framboð 2005 Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem Rúnar á sæti á lista flokksins því árið 2005 sat hann í 17. sæti á framboðslista Sjálfstæðismanna fyrir borgarstjórnarkosningar. Hann segist hafa lært margt á þessu 21 ári sem hefur liðið síðan. „Ég er náttúrulega búinn að eldast svolítið. Þarna var ég varaborgarfulltrúi ásamt því að sinna leikarastörfum, ég var fastráðinn sem leikari við Þjóðleikhúsið og svo síðar Borgarleikhúsið,“ segir hann og bætir við að núna muni hann þurfa að sinna þessu mun betur. Frétt af mbl.is Störf meirihlutans „ekkert sérstaklega glæsileg“ Listi Sjálfstæðisflokksins var kynntur í dag. mbl.is/Ólafur Árdal Kemur með reynslu að borðinu Þá segist hann afar vel stemmdur fyrir komandi verkefnum. „Það er augljóst að það er verk að vinna og mig kitlar alltaf í fingurna að fá að taka til hendinni. Mér finnst að það þurfi svona að taka til í Reykjavík. Þetta er frábær borg en hún er ekki að virka eins og hún á að virka,“ segir hann. Hann segir reynslu sína geta nýst vel í borginni. „Ég býð mig fram af því að ég held að mín rödd eigi heima í Reykjavík. Ég hef reynslu úr menningarheiminum, af verkefnastjórnun, bæði á RÚV og annars staðar. Svo hef ég líka starfað í samfélagsmálum. Ég hef bæði verið starfsmaður hjá SÁÁ og notið þjónustu þeirra, þar sem ég fór inn í meðferð fyrir 14 árum og fékk þar aðstoð,“ segir Rúnar Freyr sem segist gríðarlega spenntur fyrir áskoruninni. Hann segist ganga inn í kosningarnar með opnum hug og útilokar ekki samstarf með neinum flokkum. Hann eigi góða vini sem eru í öðrum framboðum. Frétt af mbl.is Segir lítinn mun á Sjálfstæðisflokki og Miðflokki Frétt af mbl.is Sér ekki meirihluta með Samfylkingunni Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Meirihlutinn ekki að sinna því sem hann á að sinna Lykilmenn semja í Vesturbænum Frændi Khamenei: „Eins og flestir Íranar er ég glaður“ Arsenal - Chelsea, staðan er 1:1 Austfirðingar haldi sig heima Umræðan Vinna, vöxtur, velferð Nýlegar umferðarspár – Samanburður við eldri spár Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert 21 milljarðs gjaldþrot Play Ísrael gerir loftárásir á Íran Hvað gerist eftir dauða Khameneis? Alþjóðalög „ekki efst á blaði“ Bandaríkjamanna Mest lesið Í gær Í vikunni Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Skipti um kyn í miðju matarboði Vara við stórhríð á morgun Myndir: Sandurinn við Reynisfjöru gengur til baka Appelsínugul viðvörun gefin út Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Óvæntar vinsældir í netheimum „Við erum í sambandi við allt okkar fólk“ Hraðvagnakerfi hagkvæmari kostur Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Mikil endurnýjun hjá Sjálfstæðisflokknum „Þetta er grafalvarleg staða“ Umdeild pálmaolía í Bertolli Íslendingar beðnir um að láta vita af sér Gylfi Þór leiðir Viðreisn í Mosfellsbæ 233 milljónir í starfslokasamninga Sér ekki meirihluta með Samfylkingunni Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Nýjast á mbl.is » Meirihlutinn ekki að sinna því sem hann á að sinna Lykilmenn semja í Vesturbænum Frændi Khamenei: „Eins og flestir Íranar er ég glaður“ Arsenal - Chelsea, staðan er 1:1 Austfirðingar haldi sig heima Umræðan Vinna, vöxtur, velferð Nýlegar umferðarspár – Samanburður við eldri spár Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Íslamska lýðveldið muni berjast til síðasta blóðdropa Khamenei látinn Beint: Ísraelsher heldur árásum á Íran áfram Aðsetur æðstaklerksins jafnað við jörðu Mest lesið Í gær Í vikunni Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Skipti um kyn í miðju matarboði Vara við stórhríð á morgun Myndir: Sandurinn við Reynisfjöru gengur til baka Appelsínugul viðvörun gefin út Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Óvæntar vinsældir í netheimum „Við erum í sambandi við allt okkar fólk“ Hraðvagnakerfi hagkvæmari kostur Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Mikil endurnýjun hjá Sjálfstæðisflokknum „Þetta er grafalvarleg staða“ Umdeild pálmaolía í Bertolli Íslendingar beðnir um að láta vita af sér Gylfi Þór leiðir Viðreisn í Mosfellsbæ 233 milljónir í starfslokasamninga Sér ekki meirihluta með Samfylkingunni Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“