Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Misskilningur varaþingmanns

Read Full Article →

Jónas Yngvi Ásgrímsson, stjórnarmaður í VR og varaþingmaður Flokks fólksins, fagnaði í aðsendri grein á Vísi óvæntum stuðningi „við kjarabaráttu almenna vinnumarkaðarins frá einhverjum félagsskap sem kallast Viðskiptaráð Íslands“. Tilefnið var umfjöllun ráðsins um veikindarétt opinberra starfsmanna en samkvæmt Viðskiptaráði hafa opinberir starfsmenn sjö sinnum meiri veikindarétt en starfsfólk á almennum vinnumarkaði. Af umfjöllun Viðskiptaráðs dregur varaþingmaðurinn þá ályktun að stefnan hljóti að vera að „allt launafólk njóti þeirra hámarksréttinda sem búið er að semja um“. Þar misskilur hann hrapalega ákall Björns Brynjúlfs Björnssonar og hans fólks um að veikindaréttur opinberra starfsmanna verði færður til jafns við réttindi starfsfólks á einkamarkaði. Ætla má að þessir viltu draumar Jónasar séu einn helsta martröð Björns enda mega skattpínd fyrirtækin vart við að enn fleiri steinar séu lagðir í þeirra götu við að skapa verðmæti. Huginn og Muninn er einn af föstu skoðanadálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .

Share this article