Halla Ingólfsdóttir, formaður hverfisráðs Grímseyjar, segir þær tafir á siglingum bagalegar sem orðið hafa eftir að minniháttar skemmdir urðu á skrúfubúnaði Grímseyjarferjunnar Sæfara í júní. Þær valda því að siglingin tekur oft um tíu til fimmtán mínútum lengri tíma en vanalega. Því hefur ferjan ítrekað komið seinna þangað en áætlun gerir ráð fyrir. Í júlíbyrjun sagði Vegagerðin að ferjan sigldi á takmörkuðu afli vegna gríðarlegra verðhækkana á olíu á heimsmarkaði. Akureyri.net hefur eftir Hilmari Stefánssyni, forstöðumanni almenningssamgangna hjá Vegagerðinni, að áfram verði Sæfara siglt með skemmdar skrúfur í sumar og að gert verði við þær næst þegar ferjan fer í slipp. Halla, sem er eigandi Arctic Trip auk þess að vera formaður hverfisráðs eyjunnar, segir seinkanirnar erfiðar, ekki síst þegar þær hafi teygst allt upp í hálftíma. Þannig styttist sá tími sem ferðafólk getur dvalið í Grímsey þar sem hver mínúta skipti máli. Eyjarskeggjar séu þó enn meira uggandi yfir því að skerða þurfi þjónustu Sæfara aftur líkt og síðasta vetur þegar hann var í viðgerð allan októbermánuð og svo níu vikur eftir áramót. Halla gagnrýnir Vegagerðina harðlega vegna fyrirhugaðrar fækkunar siglinga í vetur enda samgöngurnar forsenda búsetu í Grímsey. Sæfari flytji matvörur og vörur til fyrirtækja og sjávarafla í land. Halla segir ekkert svigrúm verða eftir fækkun til að bæta við ferðum falli þær niður, til dæmis vegna veðurs. „Þá getur liðið allt að vika á milli ferða sem skapar mikla óvissu fyrir bæði íbúa og fyrirtæki. Ef þróunin heldur svona áfram hlýtur maður að spyrja hvort raunverulega sé vilji til að halda samfélaginu í Grímsey lifandi.“