Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hreinkálfur fæðist á Vínlandi í sumar og eykur möguleika á fullri tamningu

Read Full Article →

Það ríkti spenna í hreindýragarðinum í Fellum þegar fósturtalningamaður kom í heimsókn. Fyrstu ástarævintýrin urðu þar í haust og gangi allt að óskum gæti ræst langþráður draumur um fulltamin hreindýr. Mikið gekk á í haust Á Vínlandi í Fellum eru tarfarnir Garpur og Mosi og kvígurnar Hreindís og Sólhyrna. Þau eru öll fædd í villtri náttúru og kvígurnar ungar. Í haust var fyrst von til að þær tækju fang og tarfarnir voru svo trylltir að ekki var hægt að koma nálægt þeim. En Björn varð nú samt vitni að rómantíkinni. Við erum náttúrlega spennt að fá að vita hvort við séum að fá kálfa. Það gekk hérna mikið á í haust á fengitímanum og ég á fulla von á að fá kálfa úr allavega annarri kvígunni og ég vil náttúrlega fá úr báðum,“ segir Björn Magnússon, eigandi Hreindýragarðsins. Við erum náttúrlega spennt að fá að vita hvort við séum að fá kálfa. Það gekk hérna mikið á í haust á fengitímanum og ég á fulla von á að fá kálfa úr allavega annarri kvígunni og ég vil náttúrlega fá úr báðum,“ segir Björn Magnússon, eigandi Hreindýragarðsins. „Það eru fætur hérna“ Við fylgdumst með þegar fósturtalningamaður á ferð um Austurland kom og kannaði hvað væri í vændum. Fyrst var Sólhyrna tekin og henni mútað með brauði. Hún fékk líka sápu á kviðinn svo að sónartækið sjái í gegnum feldinn. „Það er kálfur í þessari. Hérna hreyfir hann sig. Það eru fætur hérna,“ segir Gunnar Björnsson fósturtalningamaður á meðan hann mundar tækin. Hann hefur talið fóstur í kindum, svínum og geitum og reynt við hreinkvígur án þess að nokkuð sæist. Þá státar hann af 100% árangri í að kyngreina afkvæmi í móðurkviði og segist hafa framkvæmt slíkt í sjö skipti. „Þetta er fyrsti hreindýrakálfurinn sem ég sé í ómsjánni. Ég er stoltur af því. Hún er svona hálfgengin með en það var bara einn,“ segir Gunnar. Íslensku hreindýrin úr stofni sem hafði verið taminn í 6 þúsund ár Í ljós kom að hin kvígan, Hreindís, á ekki von á sér í sumar en samt er einn kálfur á leiðinni. „Ég er alveg sáttur með það að fá kálf. Og samkvæmt mínum útreikningum þá kemur hann 16. júní,“ segir Björn. Hann býst við að kálfurinn eigi eftir að gleðja marga sem koma í garðinn. Hann ráðfærir sig mikið við bæði Sama og hreindýrabændur á Grænlandi og reiknar með að kálfur fæddur og uppalinn í mannheimum henti vel til tamninga. „Þá verður hann ekkert svona styggur og brjálæðislega hræddur. Þetta verður bara eins og húsdýr. Þetta getur verið byrjunin á svona lítilli, vel taminni hjörð. Enda er þetta eðli hreindýranna. Þau komu til Íslands fyrir 240-250 árum síðan, öll tamin. Samarnir búnir að vera að temja þetta í 6000 ár,“ segir Björn Magnússon hreindýratemjari. Sleðadráttur spennandi fyrir ferðamenn Tarfarnir drógu sleða þangað til þeir urðu kynþroska en eftir það eru þeir ekki samvinnuþýðir stóran hluta vetrar. Mögulega verður annar þeirra geltur og þá verður hægt að prófa hann betur. Fyrir nokkrum dögum teymdu þau aðra kvíguna undir sleða og gekk vel og má sjá myndband af því í sjónvarpsfrétt sem sýnd var í gærkvöld. Hreinkálfur fæðist í mannheimum í sumar. Ómskoðun leiddi í ljós að hreinkvígan Sólhyrna í Fellum á von á sér. Það gæti orðið byrjun á fulltaminni hjörð, segir eigandi Hreindýragarðsins.

Share this article