Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Varnarsigur fyrir ferðaþjónustuna

  • What: Tourism numbers at Keflavík Airport remain stable
  • Impact: Reflects ongoing travel trends
Read Full Article →

Brottfarir erlendra farþega um Keflavíkurflugvöll voru 956.947 á fyrri helmingi ársins samkvæmt tölum Ferðamálastofu og Isavia. Um er að ræða 0,9% samdrátt milli ára þar sem brottfarir voru 965.228 á fyrri helmingi ársins 2025. Farþegaspá Isavia gerði ráð fyrir að brottfarir erlendra farþega yrðu í heildina 956.860 á fyrstu sex mánuðum ársins og voru farþegar því 87 fleiri en spáin gerði ráð fyrir. Spá Isavia gerir ráð fyrir að brottfarir verði 1.281.333 á seinni helmingi ársins, þar af 279.297 í júlí og 292.381 í ágúst. Til samanburðar voru brottfarir í júlí 2025 302.142 og 313.084 í ágúst. Í heildina reiknar Isavia með að brottfarir erlendra farþega verði 2.241.698 árið 2026 en árið 2025 voru brottfarir 2.268.802. Gangi spáin eftir verður samdrátturinn milli ára 1,2%. Tómas Ingason, framkvæmdastjóri tekju-, þjónustu- og markaðssviðs Icelandair, segir það ákveðinn varnarsigur að fjöldi ferðamanna sé nánast á pari milli ára, þar sem framboð á flugsætum til og frá landinu hefur minnkað. „Við hjá Icelandair höfum lagt mikla áherslu á markaðina til og frá Íslandi, að þjónusta þá sem allra best. Þá höfum við vísvitandi fækkað aðeins tengifarþegunum hjá okkur og þannig hefur náðst að halda uppi ferðamannastraumnum. Við bættum síðan vel í framboðið hjá okkur framan af ári, enda er það yfirlýst markmið hjá okkur að reyna að minnka árstíðasveifluna, bæði í okkar rekstri og ferðaþjónustunni heilt yfir,“ segir Tómas. Að sögn Tómasar hefur sú stefna skilað góðum árangri. Sætanýting hafi annaðhvort slegið met eða verið nálægt því að slá met alla mánuði ársins og einingatekjur verið sterkar. Sumarið hafi verið gott og hitabylgjur víða í Evrópu meðal annars stutt við eftirspurn, þar sem ferðamenn sæki í svalara loftslag, svokallað „coolcation“. Þá sé ljóst að ágúst verði sterkur en fjöldi ferðamanna er væntanlegur til landsins vegna sólmyrkvans 12. ágúst. Veturinn er þó háður meiri óvissu. Bent hefur verið á að bókunarstaða á hótelum og víðar sé lakari en á sama tíma í fyrra. Þar spili óvissa í efnahagsumhverfinu og þróunin í heimsmálum stórt hlutverk. „Þá taka ferðamenn yfirleitt ákvarðanir með skemmri fyrirvara. Þannig að við höfum ekki jafn langan sýnileika inn í veturinn eins og undir venjulegum kringumstæðum. En hingað til hefur eftirspurnin skilað sér þó að bókanirnar komi aðeins seinna heldur en áður og við gerum ráð fyrir að það haldi áfram,“ segir Tómas. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article