- What: Spotify reaches 300 million subscribers
- Impact: Growth in streaming market and increased competition
Tekjur sænsku streymisveitunnar Spotify Technologies jukust um 14% á öðrum ársfjórðungi þessa árs og námu 5,50 milljörðum dala. Greiðandi áskrifendum Spotify fjölgaði einnig og eru þeir nú orðnir yfir 300 milljónir. Þetta kemur fram á vef WSJ en þar segir að hlutabréf félagsins hafi þó lækkað vegna vaxandi kostnaðar við þróun gervigreindarlausna. Mánaðarlegum virkum notendum streymisveitunnar fjölgaði einnig um 12% milli ára og voru þeir 777 milljónir, sem var þó einni milljón undir fyrri spá félagsins. Alls fjölgaði virkum notendum um 16 milljónir á fjórðungnum en greiðandi áskrifendur jukust um sjö milljónir á sama tímabili. Sjá einnig Hagnaður Spotify þrefaldaðist Stjórnendur Spotify hafa sagt að félagið sé að stíga inn í nýtt tímabil gervigreindar og hafa komið með tillögur um eiginleika á borð við persónulega hlaðvarpsþætti sem byggja á áhugasviði notenda. Félagið er einnig að þróa nýtt gervigreindarverkfæri sem gerir tónlistaraðdáendum kleift að útbúa hljóðblöndur og útgáfur laga innan smáforritsins.