Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Samfylkingin eykur forskotið lítillega

Read Full Article →

Samfylkingin mælist aftur marktækt stærri en Sjálfstæðisflokkurinn, samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallups. Fylgi flokksins eykst milli mánaða og mælist 27,9%, samanborið við 26,2% í síðasta mánuði. Fylgi Sjálfstæðisflokksins eykst einnig og mælist 25,4% en var 24,9% í síðasta mánuði. Í síðasta mánuði var ekki marktækur munur á fylgi flokkanna, en í þessari könnun er fylgi Samfylkingarinnar aftur orðið marktækt meira. Litlar breytingar eru annars á fylgi flokka. Miðflokkurinn heldur áfram að missa fylgi og mælist með 14,6% samanborið við 15,1% í síðasta mánuði. Fylgi Viðreisnar stendur í stað og er 11,4%. Framsóknarflokkurinn mælist með 5,8% og eykst um hálft prósentustig milli mánaða. Flokkur fólksins mælist með 5,2% og fengi þrjá þingmenn. Flokkurinn mældist utan þings í síðasta þjóðarpúlsi. Vinstri græn tapa hins vegar fylgi milli mánaða og mælast með 3,9%. Þá er fylgi Sósíalista 3,2% og Pírata 2,2%. Alls segist helmingur, 50%, styðja ríkisstjórnina en samanlagt fylgi stjórnarflokkanna er 45%. Þjóðarpúls júlí 2026 Könnunin var gerð dagana 1. júlí til 3. ágúst 2026. Heildarúrtak var 13.167 manns og þátttökuhlutfall 37,2%. Vikmörk á fylgi flokka eru 0,5 til 1,4 prósentustig. Fleiri kannanir og greiningar má finna á ruv.is/kosningar .

Share this article