Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Slökktu eld í bíl í Skeifunni

Read Full Article →

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út um tuttugu mínútur yfir eitt í dag eftir að eldur kviknaði í bíl í Skeifunni. Guðmundur Hreinsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir að greiðlega hafi gengið að slökkva eldinn sem logaði aðeins í einum bíl. Enginn var í bílnum þegar eldurinn kviknaði og enginn var fluttur á sjúkrahús. Slökkviliðsmenn voru um tuttugu mínútur að slökkva eldinn að sögn Guðmundar. Fyrr í dag sagði Sigurjón Hendriksson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, við fréttastofu að einn dælubíll hefði verið sendur á vettvang. Sigurjón tiltók að þetta væri ekki rafmagnsbíll og taldi ekki mikla hættu stafa af bílnum. Fréttin var uppfærð.

Share this article