Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Yfir 3.600 hafa greitt atkvæði utan kjörfundar

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu mm . dd . áááá – mm . dd . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 13 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Yfir 3.600 hafa greitt at­kvæði utan kjör­fund­ar Hugrún Hannesdóttir Diego Alls hafa rúmlega 3.600 greitt atkvæði utan kjörfundar í þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Ísland eigi að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný. Það á við atkvæði hjá öllum sýslumannsembættum auk sendiráða Íslands og kjörræðismanna erlendis. 2.411 hafa greitt atkvæði hjá Sýslumanni höfuðborgarsvæðisins við Hlíðasmára í Kópavogi. Þjóðaratkvæðagreiðslan verður haldin 29. ágúst og atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hófst 27. júlí. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 13 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Lands­bank­inn spáir hærri stýri­vöxt­um Greiningadeild Landsbankans gerir ráð fyrir stýrivaxtahækkun 19. ágúst. „„Verðbólga er afar þrálát nú um tíðir,“ segir í fréttabréfi bankans. Þá sýni hagkerfið einnig merki kólnunar. Fyrir 44 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Enginn liggur undir grun um inn­brot­in á búin þrjú Lögregla hefur lítið í höndunum í rannsóknum á innbrotum á þrjú bú í nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Enginn liggur undir grun. Fyrir 55 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Brunavarnir Slökktu eld í bíl í Skeif­unni Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út á öðrum tímanum í dag eftir að eldur kviknaði í bíl. Greiðlega gekk að slökkva eldinn. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Neita því að hafa lagt á ráðin um hryðju­verk í Dan­mörku Þrír danskir drengir hafa verið handteknir vegna gruns um að hafa skipulagt á ungmenni í grunnskóla á Austur-Jótlandi. Drengirnir lögðu á ráðin saman í samskiptum sín á milli á samfélagsmiðlum. Yfirvöld segja þá hafa ætlað að beita sprengjum. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Peningar Neyt­enda­stofa sektar bíla­stæð­a­fyr­ir­tæki fyrir brot Neytendastofa hefur komist að þeirri niðurstöðu að brotið hefði verið gegn lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu, auk reglna sem stofnunin hefur eftirlit með. EasyPark var sektað um 500 þúsund og Parka um eina milljón. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Fótbolti Enn dregur úr stuðn­ingi við In­fant­ino Það fjölgar á listanum yfir knattspyrnusambönd sem dregið hafa til baka stuðning sinn við Gianni Infantino forseta FIFA. Svisslendingurinn situr þó sem fastast sem forseti, í bili að minnsta kosti. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Veður Skafl­inn í Esj­unni stend­ur enn Skaflinn í Gunnlaugsskarði í Esju stendur enn. Í fyrra bráðnaði hann í byrjun ágúst en veðurfræðingur segir hugsanlegt að skaflinn lifi fram á haustið og jafnvel vetur. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Hvalveiðar Band­ero-liðar bíða ákvörð­un­ar Út­lend­inga­stofn­un­ar Bandero, skip Paul Watson samtakanna, var ekki með nauðsynlega pappíra til að mega sigla, lögbundinni skoðunarskyldu hafði ekki verið sinnt og því kyrrsetti Samgöngustofa skipið. Útlendingastofnun metur nú hvort vísa eigi skipverjum úr landi. Fyrir 2 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Menning Mjög skrýt­ið að sjá bara einn af hverj­um eftir hátíð Systurnar Elín Hrönn og Hrefna Ósk eru á leið á risastóra tvíburahátíð í Ohio í sjötta sinn. Þær segja það alltaf sérkennilegt eftir hverja hátíð að sjá ekki tvennt af öllu. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Peningar Enn verið að vinda ofan af tvö­föld­um færsl­um Landsbankinn og Arion banki eru enn að vinna ofan af færslum sem birtust tvöfaldar hjá viðskiptavinum um helgina. Búið er að leiðrétta tvíbókunina en bankarnir vinna nú úr kostnaði vegna villunnar. Mannleg mistök hjá Rapyd ollu villunni. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Nærri 160 manns bjarg­að úr Ermar­sundi Eldur kviknaði um borð í bát og fólk greip til þess ráðs að hoppa í sjóinn. Björgunarskip frá Frakklandi og Bretlandi voru send á vettvang til að bjarga fólkinu. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Einn hand­tek­inn í tengsl­um við skóg­ar­eld í Wash­ing­ton-ríki Karlmaður á fertugsaldri hefur verið handtekinn vegna gruns um aðild að einum þriggja skógarelda sem hafa geisað í Washington-ríki Bandaríkjanna síðustu daga. Vitni segjast hafa séð til mannsins. Um 65.000 manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Týndu Kól­umb­íu­menn­irn­ir í haldi lög­reglu grun­að­ir um fíkni­efna­inn­flutn­ing Kólumbíska fjölskyldan sem lýst var eftir var handtekin við komuna til Íslands. Ættingjar lýstu eftir fjölskyldunni í gær. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Frakkland Heitasti mán­uð­ur í Frakk­landi frá upp­hafi mæl­inga Nýliðinn mánuður var sá heitasti frá upphafi mælinga í Frakklandi. 420 ferkílómetrar brunnu í skógareldum sem kviknuðu í landinu 22. júlí. Það er á stærð við fjórar Parísarborgir. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Ísland Áforma að breyta lögum um .is Innviðaráðuneytið hyggst breyta lögum um íslensk landshöfuðlén, .is. Áform þess efnis voru kynnt á samráðsgátt stjórnvalda á föstudaginn. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sólmyrkvi 2026 Notkun heima­gerðra sól­myrkva­gler­augna „hættu­spil sem getur endað með blindu“ Í nýju svari á Vísindavefnum er mikilvægi vottaðra sólmyrkvagleraugna ítrekað. Málmhúð í gleraugunum er viðkvæm fyrir núningi og því gæti verið óráðlegt að nota gömul gleraugu. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Fimm drepn­ir í árás Úkra­ínu­hers á vöru­hús Wild­berr­i­es Úkraínuher hefur á síðustu vikum gert árásir á vöruhús netverslunarrisans Wildberries. Stjórnvöld í Kænugarði saka fyrirtækið um að sjá Rússlandsher fyrir íhlutum í dróna en því hafna stjórnvöld í Moskvu. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Evrópa Evr­ópu­ríki ræða landa­mæra­ör­yggi vegna Ceuta Fulltrúar 23 ríkja Evrópusambandsins og EFTA-ríkjanna fjögurra koma saman á fjarfundi vegna atburðanna í Ceuta síðustu daga, þar á meðal dómsmálaráðherra Íslands. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Rússland Stjórn­ar­and­stæð­ing­ur flúinn til Frakk­lands Boris Nadezhdin hefur talað gegn innrás Rússa í Úkraínu. Hann reyndi að bjóða sig fram í forsetakosningunum í Rússlandi fyrir tveimur árum en fékk ekki að bjóða sig fram. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Hitinn gæti náð 20 stigum aust­an­lands Búast má við ágætisveðri víðast hvar í dag og á morgun með hita á bilinu 9 til 15 stig. Austanlands verður yfirleitt bjart veður með hita allt að 20 stigum. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Íbúar í mið­bæn­um yf­ir­bug­u­ðu inn­brots­þjóf Innbrotsþjófur var staðinn að verki þegar hann reyndi að brjótast inn í mannlausa íbúð í miðbænum í nótt. Nágrannar yfirbuguðu þjófinn og héldu honum þar til lögregla kom á vettvang. Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR Skíði Vill styðja næstu konur í að toppa sig eftir að skíðin þurftu að fara á hill­una Kristrún Guðnadóttir er tvöfaldur ólympíufari í skíðagöngu og fjórtánfaldur Íslandsmeistari. Eftir meiðsli í hné þurfti hún að taka þá erfiðu ákvörðun að leggja skíðin á hilluna. Hún segist þó áfram vilja leggja sitt af mörkum til íþróttarinnar. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Suðurnes Suð­ur­nesja­menn búast við þús­und­um gesta 12. ágúst Von er á þúsundum gesta á Suðurnes þegar almyrkvi verður á sólu 12. ágúst. Sveitarfélögin hafa undirbúið fjölbreytta viðburði svo njóta megi sjónarspilsins sem best. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Loftslagsmál Þrjár ljón­ynj­ur dráp­ust vegna hita­slags í dýra­garði Brynja Dögg Friðriksdóttir Ísbjörn gæðir sér á ísklumpi í Asahiyama-dýragarðinum í Asahikawa á Hokkaido-eyju 25. júlí sl. Myndin tengist fréttinni óbeint. AP/Kyodo News / Junko Ozaki Grunur leikur á að þrjár ljónynjur hafi drepist úr hitaslagi í dýragarði í Tokyo í Japan á síðustu dögum. Hiti hefur víða náð 40 gráðum í landinu á undanförnum vikum. Frá miðjum júlí hafa 10 af 16 ljónum Tama-dýragarðsins sýnt merki um minni matarlyst og hafa látið lítið fyrir sér fara. Dýralæknar garðsins segja að þrátt fyrir að ljón hafi mikið þol fyrir þurrum hita þá þrífist þau illa í miklum raka, líkt og hefur verið í Japan í sumar. Mörg ljón í dýragarðinum þurfa enn á sérstakri umönnun að halda vegna hitans. Unnið er við að bæta aðstæður þeirra með því að úða vatni og bæta úr loftræstingu og loftkælingu fyrir dýrin. 4. ágúst 2026 kl. 3:40INNLENDAR FRÉTTIR Vestmannaeyjabær Blysin tendr­uð í Herj­ólfs­dal Veðrið lék við þjóðhátíðargesti í Herjólfsdal þegar blysin voru tendruð á lokakvöldi Þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum á sunnudagskvöld. 4. ágúst 2026 kl. 2:51ERLENDAR FRÉTTIR Loftslagsmál 65.000 yf­ir­gefa heim­ili sín vegna skóg­ar­elda í Wash­ing­ton-ríki Slökkviliðsmenn berjast við 17 skógarelda í Washington-ríki á vesturströnd Bandaríkjanna og þar af eru þrír stórir eldar í nágrenni Spokane. Ríkisstjóri Washington telur skógareldana vera mestu náttúruhamfarir í sögu ríkisins. 4. ágúst 2026 kl. 1:26ERLENDAR FRÉTTIR Frakkland Sprengj­ur og skot­færi úr síðari heims­styrj­öld­inni fund­ust eftir skóg­ar­elda Mikið magn sprengja og skotfæra frá síðari heimsstyrjöld kom í ljós eftir mikla skógarelda vestur af Bordeaux í Frakklandi. Íbúar fengu að snúa aftur heim til sín þegar búið var að hreinsa svæðið. 3. ágúst 2026 kl. 23:47ERLENDAR FRÉTTIR Venesúela Fjöldi lát­inna eftir jarð­skjálft­ana kominn í 6.125 Brynja Dögg Friðriksdóttir Margir eru heimilislausir eftir skjálftana og um 24.000 búa í tjöldum í La Guaira og Caracas. AP / Ariana Cubillos Yfirvöld í Venesúela segja að fjöldi látinna eftir jarðskjálftana sé nú 6.125. Björgunarfólk og aðstandendur leita enn látinna í rústunum. Staðfestar upplýsingar um fjölda þeirra sem saknað er liggja ekki fyrir. Yfirvöld hafa ekki gefið út hversu margra er saknað en sérfræðingar telja að um 10.000 manns sé saknað. Ríkisstjórinn í La Guaira segir að enn sé um 1.400 manns saknað. 190 byggingar gjöreyðilögðust í jarðskjálftunum og um 16.200 byggingar eru ótryggar. Margir misstu húsnæði sitt og eru heimilislausir. Ríkisstjórn Venesúela samþykkti lög á föstudaginn sem er ætlað að auðvelda útleigu húsnæðis. 3. ágúst 2026 kl. 22:05ERLENDAR FRÉTTIR Úkraína Sendi­herra Úkra­ínu í Banda­ríkj­un­um rekinn Sendiherra Úkraínu í Bandaríkjunum var rekinn í dag fyrir tilskipun Zelensky Úkraínuforseta. 3. ágúst 2026 kl. 21:16INNLEN

Share this article