Fulltrúar CLIA (Cruise Lines International Association) og Cruise Iceland fóru nýlega í vikulanga kynningarferð um Ísland og funduðu með sveitarstjórnum, hafnaryfirvöldum og ferðaþjónustuaðilum víða um landið. Í tilkynningu segir að fundað hafi verið í Vestmannaeyjum, Grundarfirði, Hrísey, Akureyri, Ísafirði og Reykjavík. Til umræðu var framtíð skemmtiferðaskipasiglinga á Íslandi og áframhaldandi samstarf fyrirtækja innan geirans við nærsamfélög, sjálfbær stjórnun áfangastaða og samkeppnishæfni til lengri tíma. Sjá einnig Skipin skiluðu sjö milljörðum í ríkissjóð Hans Chen Braas, CLIA-svæðisstjóri fyrir Norðurlönd og Eystrasaltsríkin, segir að skemmtiferða- og leiðangursskip gegni mikilvægu hlutverki í að styðja við samfélög um allt Ísland. „Heimsóknir vikunnar hafa veitt okkur dýrmætt tækifæri til að hitta nýkjörna sveitarstjórnarfulltrúa, skiptast á sjónarmiðum og halda áfram að byggja upp það samstarf sem er nauðsynlegt til að tryggja að ferðaþjónusta skemmtiferðaskipa þróist með þeim hætti að hún gagnist bæði nærsamfélögum og gestum.“ Samkvæmt tilkynningu námu efnahagsleg áhrif af skemmtiferða- og leiðangursskipasiglingum á Íslandi árið 2023 meira en 40 milljörðum króna, sem studdi við rekstur fyrirtækja og ferðaþjónustufyrirtækja í afþreyingu og þjónustu víðs vegar um landið. Fundur í Vestmannaeyjum með Dóru Björk Gunnarsdóttur hafnarstjóra og Írisi Róbertsdóttur auk hagaðila. © Aðsend mynd (AÐSEND) Skipin eru jafnframt sögð lengja ferðamannatímabilið þar sem margir farþegar dvelja á landinu fyrir eða eftir siglingu. Siglingaáætlanir eru einnig skipulagðar mörg ár fram í tímann og geta því veitt áfangastöðum aukinn fyrirsjáanleika. Kynningarátakinu lauk sunnudaginn 2. ágúst með skoðunarferð um borð í Le Lapérouse, skipi Ponant Explorations í Hafnarfjarðarhöfn. „Í meira en tvo áratugi hefur Ísland skipað sérstakan sess í könnunarferðum Ponant Explorations. Allt frá jómfrúarferð Le Lapérouse frá Reykjavík í júní 2018 upp í formlega nafngift skipsins í Hafnarfirði nokkrum vikum síðar hefur landið verið verðmætur samstarfsaðili í sumum af okkar mikilvægustu áföngum,“ segir Maxime Benoit, skiptstjóri Le Lapérouse.