Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Úkraínskur drónaframleiðandi opnar verksmiðju

  • What: Ukrainian drone manufacturer Ukrspecsystems opens a factory in Suffolk, England.
  • Impact: Drones produced will support Ukraine's military in its conflict with Russia; UK government has bought 80 drones.
Read Full Article →

Drónaframleiðandinn Ukrspecsystems opnaði í gær drónaverksmiðju í Suffolk á Englandi samkvæmt tilkynningu frá bresku ríkisstjórninni. Fyrirtækið verður með framleiðslu í Mildenhall en flugæfingarsvæði í Elmsett í Suffolk á Englandi. Drónarnir verða framleiddir fyrir úkraínska herinn og nýttir í baráttu hans við rússneska herinn í Úkraínu. Fleiri úkraínsk fyrirtæki í varnarmálum hafa opnað eða eru með áætlanir um að opna fyrirtæki í Danmörku og Þýskalandi. Ekki liggur fyrir hvers kyns drónar verða framleiddir í Englandi en fyrirtækið Ukrspecsystems hefur frá stofnun 2014 framleitt eftirlitsdróna. Breska ríkisstjórnin hefur nú þegar keypt 80 slíka dróna fyrir úkraínska herinn. ,,Ný verksmiðja Ukrspecsystems er traustsyfirlýsing á stuðningi Bretlands og undirstrikar aukna samvinnu milli varnariðnaðar þjóða okkar,“ sagði Luke Pollard, ráðherra varnarviðbragða og iðnaðar, við vígsluatöfn fyrirtækisins í gær.

Share this article