Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Þetta eru lögin sem þú átt að hlusta á þegar sólmyrkvinn gengur yfir

Read Full Article →

Það er óhætt að segja að margir bíði spenntir eftir almyrkva á sólu sem mun sjást hér á landi þann 12. ágúst. Það eru ekki bara landsmenn sem bíða spenntir eftir náttúrufyrirbærinu heldur er fjöldi ferðamanna væntanlegur til landsins gagngert til þess að berja sólmyrkvann augum. Siggi Gunnars velti fyrir sér í þætti sínum „Eitthvað út í bláinn“ á Rás 2 um helgina hvaða lög hægt væri að hlusta á á meðan sólmyrkvinn gengur yfir. Fann hann þrjú lög, sem öll tengjast Bítlunum, sem sniðugt er að láta renna í gegn í bakgrunni til þess að fullkomna upplifunina. Þann 12. ágúst 2026 verður almyrkvi á sólu sjáanlegur frá Íslandi í fyrsta sinn síðan 1954. Siggi Gunnars tók saman þrjú lög sem hægt er að hlusta á meðan sólmyrkvinn gengur yfir. Þú getur hlustað á samantektina hans í spilaranum hér að ofan. Sólmyrkvaþrennan 1. Sun King – The Beatles Þetta lag kom út á plötunni Abbey Road árið 1969. Lagið er draumkennt og þarna má heyra þríradda söng þeirra John Lennon, Paul McCartney og George Harrison. Sólin ríkir ennþá og er kóngurinn. Þessir draumkenndu tónar taka okkur inn í það sem koma skal. Þann 12. ágúst 2026 verður almyrkvi á sólu sjáanlegur frá Íslandi í fyrsta sinn síðan 1954. Siggi Gunnars tók saman þrjú lög sem hægt er að hlusta á meðan sólmyrkvinn gengur yfir. 2. Here Come The Moon – George Harrison Þetta lag kom út árið 1979 á sólóplötu George Harrison og er augljóst framhald af laginu Here Comes The Sun . Lagið samdi hann á Hawaii þegar hann sá tunglið rísa um leið og sólin settist. Þetta lag hentar því einstaklega vel þegar tunglið fer fyrir sólina í almyrkvanum. Þann 12. ágúst 2026 verður almyrkvi á sólu sjáanlegur frá Íslandi í fyrsta sinn síðan 1954. Siggi Gunnars tók saman þrjú lög sem hægt er að hlusta á meðan sólmyrkvinn gengur yfir. 3. Here Comes The Sun - The Beatles Þá kemur hið eina sanna sólarlag og eitt vinsælasta Bítlalag allra tíma, af Abbey Road frá 1969, og eftir George Harrison. Þegar tunglið hörfar kemur sólin aftur og glæðir allt lífi. Lagið er táknmynd bjartsýni og nýs upphafs. Þann 12. ágúst 2026 verður almyrkvi á sólu sjáanlegur frá Íslandi í fyrsta sinn síðan 1954. Siggi Gunnars tók saman þrjú lög sem hægt er að hlusta á meðan sólmyrkvinn gengur yfir. Nú er um að gera að skella þessum lögum á lagalista og láta renna í gegn þegar stóra stundin gengur í garð þann 12. ágúst. Rétt er að geta þess að bein útsending verður frá almyrkvanum og öllu því sem verður að gerast í kringum viðburðinn á RÚV frá kl. 13.00 miðvikudaginn 12. ágúst. Almyrkvinn nær hámarki kl. 17.48.

Share this article