Security News

Cybersecurity news aggregator

HIGH Attacks RÚV

14 drepnir í Rússlandi og Úkraínu í gær

  • What: Cyberattacks and drone strikes between Ukraine and Russia
  • Impact: Infrastructure and civilians affected by ongoing conflict
Read Full Article →

Úkraínuher gerði árásir í Belgorod-héraði í gær. Fjórir voru drepnir í þeim árásum, þar á meðal unglingsstúlka, eftir því sem yfirvöld í héraðinu greina frá. Þá gerði Úkraínuher einnig drónaárás á Saratov-hérað sem liggur að landamærum Kasakstan og Udmurtia-hérað sem er í yfir eitt þúsund kílómetra fjarlægð frá víglínunni. Árásir Rússa voru í Dnipropetrovsk, Zaporizhzhia, Kherson og Kharkiv. Bæði rússnesk og úkraínsk yfirvöld hafna því að herir landanna geri árásir á almenna borgara. Hátt í 20 árásir á Wildberries Úkraínuher gerði árás á vöruhús netverslunarinnar Wildberries í Vladimir-héraði um 180 kílómetra austur af Moskvu í nótt. Eldur braust út og starfsfólk þurfti að yfirgefa bygginguna, segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. Héraðsstjórinn Alexander Avdeyev segir að árásin hafi verið gerð með drónum og einn maður hafi slasast. Úkraínuher hefur gert árásir á um 20 mismunandi rekstrareiningar Wildberries víða í Rússlandi og á Krímskaga síðan um miðjan júlí.

Share this article