Security News

Cybersecurity news aggregator

MEDIUM News RÚV

Kúbverjar í kolniðamyrkri

  • What: Repeated power outages in Cuba due to infrastructure issues
  • Impact: Affects 10 million residents with no electricity
Read Full Article →

Algert rafmagnsleysi varð á Kúbu seint í gærkvöld þegar raforkudreifikerfið brást enn á ný. Ítrekað rafmagnsleysi á eyjunni er tilkomið vegna úrelts raforkubúnaðar, viðskiptaþvingana Bandaríkjanna og eldsneytisskorts. Aðeins sólarhringur er síðan vesturhluti landsins varð alveg rafmagnslaus. Reuters segir að algert rafmagnsleysi hafi þrisvar sinnum orðið í júlímánuði. Rafmagnsleysið hefur mikil áhrif á þær tíu milljónir sem búa á eyjunni og íbúar eru orðnir langþreyttir á ástandinu. Vatnsból klárast hægt og rólega í rafmagnsleysinu og ekki er hægt að nýta loftviftur til kælingar innandyra. Íbúar sem hafa orðið hvað mest fyrir barðinu á rafmagnsleysinu hafa tjáð óánægju sína með því að kveikja í rusli og berja í potta og pönnur. Orkuráðuneytið á Kúbu segir að unnið sé að því að koma raforkudreifikerfinu í gang á ný. Bandaríkjastjórn gaf einu rússnesku olíutankskipti leyfi til að flytja olíu til eyjunnar í mars. Þær olíubirgðir eru nú uppurnar.

Share this article