- What: Five people arrested in Akureyri after weapons found in two cars
- Impact: Local law enforcement and special forces involved in the operation
Lögreglan á Norðurlandi eystra handtók fimm á Akureyri síðdegis. Skotvopn fundust í tveimur bílum. Þetta staðfestir Hjalti Bergmar Axelsson aðstoðaryfirlögregluþjónn. Lögreglu barst tilkynning um grun um vopnaburð og voru tveir bílar stöðvaðir. Skotvopn fundust í báðum bílum. Fimm voru handteknir og fluttir í fangaklefa. Sérsveit ríkislögrgelustjóra aðstoðaði lögreglu við aðgerðina. Engin meiðsli urðu á fólki. Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn í aðgerðum lögreglunnar á Akureyri í gær. Maðurinn reyndist vera með hníf á sér og var hann vistaður í fangageymslu í nótt.