Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Nýr brekkusöngvari Þjóðhátíðar í Eyjum er spenntur fyrir kvöldinu

Read Full Article →

„Það er tryllt veður hérna, ég er á röltinu að ná mér í kaffi og byrja daginn rólega. Ég hélt að ég myndi verða orðinn stressaður svona á sjálfum leikdegi en svo bara þegar maður hittir eyjafólkið og alla gesti, hvað allir eru spenntir fyrir þessu, róar það taugarnar hjá mér, allavega eins og er,“ segir Ágúst í samtali við Sigga Gunnars um hvernig taugarnar eru í aðdraganda þess að stígur á svið í Herjólfsdal sem nýr brekkusöngvari Þjóðhátíðar. Ágúst segist munu setja sitt mark á brekkusönginn. „Án þess að gefa of mikið upp er ég spenntastur fyrir því að taka nokkur lög sem fólk er ekkert að búast við að heyra í kvöld.“ Hann bætir þó við að allt það helsta verði á sínum stað, þar með talið hið óviðjafnanlega Lífið er yndislegt . Hlustaðu á skemmtilegt viðtal við Ágúst í spilaranum að ofan.

Share this article