Umferðin frá borginni hefur gengið óvenju vel miðað við að mesta ferðahelgi ársins er að ganga í garð. Lögregla segir að ferðavenjur fólks séu að breytast og að margir leggi fyrr af stað út í verslunarmannahelgina. Margir nýti sér styttingu vinnuvikunnar til að geta lagt fyrr af stað. Logi Sigurjónsson, aðalvarðstjóri umferðardeildar, segir að það borgi sig að gefa sér aðeins meiri tíma í umferðinni á svona miklum ferðahelgum og ráðleggur fólki að fara fyrr af stað en venjulega. Hann minnir einnig á að fólk ætti ekki að leggja af stað heim fyrr en það er orðið ökuhæft. Lögreglan á Suðurlandi segir að umferðin hafi verið nokkuð þétt en gengið vel. Umferð hefur einnig verið töluverð á Norðurlandi og margir leggja leið sína meðal annars á hátíðina Ein með öllu á Akureyri.