Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Úr ólíkum áttum: Að gagnrýna Ísland inn í ESB

Read Full Article →

Innlent | Sunnudagsblað | 1.8.2026 | 8:00 Úr ólíkum áttum: Að gagnrýna Ísland inn í ESB Árni Helgason Setja bókamerki Pistill Árna Helgasonar úr Sunnudagsblaðinu T vö grundvallaratriði valda já-sinnum erfiðleikum fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna í lok ágúst. Í fyrsta lagi aðildarviðræðurnar frá 2009 til 2013 sem lauk án árangurs og án þess að undanþágur hafi boðist í sjávarútvegs- og auðlindamálum. Í öðru lagi hvað Íslandi hefur farnast vel síðan þá. Mikill áróður er í gangi til að reyna að hnekkja þessu tvennu. Gefin eru fyrirheit um að undanþágur eða sérlausnir fáist í sjávarútvegs- og auðlindamálum. Ummæli forsætisráðherra Hollands á dögunum um að engar slíkar undanþágur séu í boði sýna hins vegar vel að þetta tal byggist ekki á neinu. Engar breytingar hafa orðið hjá ESB nema síður sé. Hitt atriðið snýr að árangri okkar. Frá 2013 hefur kaupmáttur aukist, hagvöxtur verið kröftugur og meiri en meðaltal ESB-ríkjanna á sama tíma. Mikil uppbygging hefur orðið í íslensku atvinnulífi, t.d. í ferðaþjónustu og nýsköpun, Kerecis varð fyrsti íslenski „einhyrningurinn“ og hingað hefur komið erlend fjárfesting, s.s. Costco, Bauhaus, innviðasjóðurinn Ardian og margt fleira. Það sem mestu skiptir er að lífskjör hér á landi eru samkvæmt nánast öllum mælikvörðum meðal þeirra bestu í heimi, dreifing eigna og tekna ein sú jafnasta og lífsgæði með því sem best gerist. Það er umhugsunarvert hvernig reynt er að tala þessa stöðu niður. Íslenskum fyrirtækjum eru sendar pillur, þau eru sögð standa fyrir fákeppni og óttist aðild af þeim sökum. Meira að segja forsætisráðherra stökk á þennan vagn þegar hún veitti viðtal á dögunum í bresku hlaðvarpi. Þetta eru ótrúleg skilaboð til þeirra fjölmörgu Íslendinga sem reka fyrirtæki í sífellt þyngra umhverfi. Lítið heyrist frá já-sinnunum í umræðum um gullhúðun, aukna gjaldtöku eða sífellt flóknara regluverk atvinnulífsins en þeir verða svo mjög hissa og ósáttir ef verðlag hækkar sem afleiðing af því. Verðlag er slitið úr samhengi við laun og kaupmátt og því haldið fram að það muni lækka um 25% við inngöngu í ESB. Sú fullyrðing byggist ekki á traustum grunni, ekki frekar en í nýlegu myndbandi Já-hreyfingarinnar um hve marga mjólkurlítra væri hægt að kaupa fyrir lágmarkslaun hér á landi samanborið við Svíþjóð. Færslan var á endanum fjarlægð en það segir sína sögu að enginn efaðist um að mjólkurlítrinn hér á landi kostaði 360 krónur. Í áðurnefndum hlaðvarpsþætti sagðist annar þáttastjórnandinn hafa rætt við Íslendinga og andstætt óánægjunni sem var einkennandi í aðdraganda Brexit þá segði fólk hér að líf þess væri mjög gott. Hann spurði því hvers vegna væri yfirhöfuð verið að eiga við þetta mál! Við þessari mikilvægu spurningu hefur ekki fengist nægjanlega sannfærandi svar. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll Enn einn leikmaðurinn á förum frá Newcastle? Aðsend grein: Við semjum ekki um grundvallarreglurnar Aðsend grein: Nú er frí og á þriðjudag hefst baráttan að nýju Úr ólíkum áttum: Spurningin Umræðan Margbrotinn Ódysseifur Þrautir í Ceuta Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bandero siglir utan í skip Hvals Forstjóri Gæslunnar mættur og brúin sígur Skipverjum haldið í Bandero fram yfir helgi Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Mest lesið Í gær Í vikunni Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Catherine vildi ekki fylgja foreldrunum í dauðann Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Myndir: Vinna að því að klófesta lausa minka Sérkennilegt að húsið standi autt Myndir: Þjóðhátíð sett í veðurblíðu Minkur faldi sig undir húddi: „Þetta var hræðilegt“ Saklaus læknatími endaði með innlögn Verslun en ekki kosningaskrifstofa Tvírukkanir hafa verið leiðréttar Saklaus læknatími endaði með innlögn Minkur faldi sig undir húddi: „Þetta var hræðilegt“ Sérsveitin og Gæslan tóku yfir stjórn Bandero Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Var í afneitun vegna versnandi heilsu Inngrip auðveld innan landhelgi Myndir: Ísjakinn í Skagafirði bráðnar í kvöldsólinni Erfitt rekstrarumhverfi: Aflýsa öllu áætlunarflugi Forstjóri Gæslunnar mættur og brúin sígur Myndir: Bandero kominn til hafnar Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Bandero siglir utan í skip Hvals Íslendingum sendur tónninn 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Gunnar Þórðarson er látinn Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Saklaus læknatími endaði með innlögn Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“ Nýjast á mbl.is » Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll Enn einn leikmaðurinn á förum frá Newcastle? Aðsend grein: Við semjum ekki um grundvallarreglurnar Aðsend grein: Nú er frí og á þriðjudag hefst baráttan að nýju Úr ólíkum áttum: Spurningin Umræðan Margbrotinn Ódysseifur Þrautir í Ceuta Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Veittu Bandero eftirför í yfir fjórar klukkustundir Bandero siglir utan í skip Hvals Aldrei liðið að öryggi manna að störfum sé ógnað Skipverjum haldið í Bandero fram yfir helgi Mest lesið Í gær Í vikunni Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Catherine vildi ekki fylgja foreldrunum í dauðann Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Myndir: Vinna að því að klófesta lausa minka Sérkennilegt að húsið standi autt Myndir: Þjóðhátíð sett í veðurblíðu Minkur faldi sig undir húddi: „Þetta var hræðilegt“ Saklaus læknatími endaði með innlögn Verslun en ekki kosningaskrifstofa Tvírukkanir hafa verið leiðréttar Saklaus læknatími endaði með innlögn Minkur faldi sig undir húddi: „Þetta var hræðilegt“ Sérsveitin og Gæslan tóku yfir stjórn Bandero Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Var í afneitun vegna versnandi heilsu Inngrip auðveld innan landhelgi Myndir: Ísjakinn í Skagafirði bráðnar í kvöldsólinni Erfitt rekstrarumhverfi: Aflýsa öllu áætlunarflugi Forstjóri Gæslunnar mættur og brúin sígur Myndir: Bandero kominn til hafnar Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Bandero siglir utan í skip Hvals Íslendingum sendur tónninn 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Gunnar Þórðarson er látinn Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Saklaus læknatími endaði með innlögn Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“

Share this article