Innlent | mbl | 31.7.2026 | 16:24 Aldrei liðið að öryggi manna að störfum sé ógnað Ráðherra segist ekki telja nauðsynlegt að grípa til einhverra diplómatískra aðgerða eða samtala við stjórnvöld annarra ríkja vegna málsins. Samsett mynd/mbl.is/Hákon/Margrét Þóra Ólafur Pálsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Hvalveiðar Myndir: Skipverjar færðir í land til yfirheyrslu Myndir frá vettvangi: Aðför Bandero og aðgerðir LHG Veittu Bandero eftirför í yfir fjórar klukkustundir Myndir: Skipverjum Banderos hleypt út Birta hljóðbrot: „Munum koma um borð með valdi“ » Fleiri tengdar fréttir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segist ánægð með störf bæði Landhelgisgæslunnar og ríkislögreglustjóra í máli Banderos, skips hvalverndunarsinnans Pauls Watsons, en séraðgerðarsveit landhelgisgæslunnar og sérsveit ríkislögreglustjóra fóru um borð í skipið og tóku yfir stjórn þess í gærkvöld. Áhöfnin á Hval 9 óskaði eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar en hún taldi öryggi sínu ógnað. Þá hlýddi skipstjórinn ekki fyrirmælum Landhelgisgæslunnar. Var hann handtekinn og skipið fært til hafnar í Reykjavík. Frétt af mbl.is Veittu Bandero eftirför í yfir fjórar klukkustundir Vel heppnuð aðgerð „Þetta var vel heppnuð aðgerð af hálfu Landhelgisgæslunnar og sérsveitarinnar og náði fram þeim markmiðum sem henni var ætlað að ná,“ segir Þorbjörg sem segir Landhelgisgæsluna hafa haldið sér upplýstri um stöðuna sem upp var komin í gærkvöld. Ráðherra segir málið í raun ekki koma beint til kasta ráðuneytisins eða sín sem dómsmálaráðherra og segist hún ekki telja nauðsynlegt að grípa til einhverra diplómatískra aðgerða eða samtala við stjórnvöld annarra ríkja vegna þess. Frétt af mbl.is Stofnuðu skipverjum í hættu og sýndu mótþróa mbl.is/Hákon „Þetta eru samtök aktivista“ „Ég sé enga ástæðu til þess. Þetta eru samtök aktivista og hér er ekki einhver ágreiningur eða skoðanaskipti ríkja í millum. Það var einfaldlega komin upp sú staða að menn voru ekki að fara að íslenskum lögum og farnir að ógna öryggi íslenskra sjófarenda. Við getum haft okkar skoðanir á hvalveiðum, ég hef mínar skoðanir á þeim, en það var ekki liðið og hefði auðvitað aldrei verið látið líðast að menn gætu komist upp með það óáreittir að ógna öryggi manna sem þarna voru að störfum, aldrei,“ segir Þorbjörg Sigríður ákveðin. Hún segir allt aðra stöðu hafa verið komna upp þegar menn hafi verið komnir inn fyrir íslenska landhelgi, neituðu að fara að fyrirmælum og höfðu uppi ógnandi hegðun í garð manna sem voru að störfum við lögleg störf. Frétt af mbl.is Myndir frá vettvangi: Aðför Bandero og aðgerðir LHG Myndu aldrei líða að öryggi manna sé ógnað „Stjórnvöld myndu auðvitað aldrei líða það að öryggi manna hér sé ógnað, þannig að við því varð auðvitað að bregðast og það var gert. Verkefnið og aðgerðin var Landhelgisgæslunnar en ráðuneytið var upplýst í gær og fram eftir kvöldi um hvernig þessu var að vinda fram.“ Þorbjörg segist ekki geta staðfest að léttabátur frá Bandero hafi siglt utan í Hval 9 eins og fyrstu fregnir hermdu og vísaði á Landhelgisgæsluna eða aðra sem þátt tóku í aðgerðinni hvað það varðar. Frétt af mbl.is Birta hljóðbrot: „Munum koma um borð með valdi“ Í meðförum lögreglu Spurð hverju skipverjar á Bandero geta búist við í framhaldinu segir ráðherra að Landhelgisgæslan hafi afhent lögreglu málið til rannsóknar. Segist hún bera fullt traust til þess að lögregla vinni málið vel áfram eins og Landhelgisgæslan gerði en segist ekkert geta sagt til um framhaldið. Þá segir hún aðspurð að það sé lögreglu að svara því hverjir verða dregnir inn í málið, sbr. Paul Watson sjálfur eða aðrir sem kunna að hafa unnið að skipulagningu aðgerðar Bandero. Tengdar fréttir Hvalveiðar Myndir: Skipverjar færðir í land til yfirheyrslu Myndir frá vettvangi: Aðför Bandero og aðgerðir LHG Veittu Bandero eftirför í yfir fjórar klukkustundir Myndir: Skipverjum Banderos hleypt út Birta hljóðbrot: „Munum koma um borð með valdi“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Aldrei liðið að öryggi manna að störfum sé ógnað Áfall fyrir Íslandsmeistarana Er Einsi Kaldi með flottasta tjaldið? Trump: „Munið þessa mynd“ Minkur faldi sig undir húddi: „Þetta var hræðilegt“ Umræðan Hindranir og hagvöxtur í litlu hagkerfi Fullveldi og fjárhagslegt sjálfstæði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Minkurinn tekur sér ekki frí yfir versló“ Bandero siglir utan í skip Hvals Minnast Gunnars: „Maður hélt niðri í sér andanum“ Ríki ESB á móti varanlegum undanþágum Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveitin og Gæslan tóku yfir stjórn Bandero Saklaus læknatími endaði með innlögn Inngrip auðveld innan landhelgi Var í afneitun vegna versnandi heilsu Myndir: Ísjakinn í Skagafirði bráðnar í kvöldsólinni Forstjóri Gæslunnar mættur og brúin sígur Myndir: Bandero kominn til hafnar Afdrif stúkunnar ráðast fljótlega Myndskeið: „Nánast eins og í James Bond-mynd“ Bandero siglir utan í skip Hvals Andlát: Skúli Steinar Pétursson Bandero siglir utan í skip Hvals Gunnar Þórðarson er látinn Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Fékk ný lungu eftir margra ára veikindi Mikið af mat fargað: „Ekki til fyrirmyndar“ Myndir: Megas lagður til hinstu hvílu Rændu heilum gámi af kampavíni Vélinni hlekktist á í lendingu: Situr pikkföst Birta myndir frá vettvangi: „Aðgerðin heppnaðist“ Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Bandero siglir utan í skip Hvals Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Gunnar Þórðarson er látinn Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“ Nýjast á mbl.is » Aldrei liðið að öryggi manna að störfum sé ógnað Áfall fyrir Íslandsmeistarana Er Einsi Kaldi með flottasta tjaldið? Trump: „Munið þessa mynd“ Minkur faldi sig undir húddi: „Þetta var hræðilegt“ Umræðan Hindranir og hagvöxtur í litlu hagkerfi Fullveldi og fjárhagslegt sjálfstæði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Saklaus læknatími endaði með innlögn „Verðum bara eitthvað peð þegar bjátar á“ Aldrei liðið að öryggi manna að störfum sé ógnað Mikið af mat fargað: „Ekki til fyrirmyndar“ Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveitin og Gæslan tóku yfir stjórn Bandero Saklaus læknatími endaði með innlögn Inngrip auðveld innan landhelgi Var í afneitun vegna versnandi heilsu Myndir: Ísjakinn í Skagafirði bráðnar í kvöldsólinni Forstjóri Gæslunnar mættur og brúin sígur Myndir: Bandero kominn til hafnar Afdrif stúkunnar ráðast fljótlega Myndskeið: „Nánast eins og í James Bond-mynd“ Bandero siglir utan í skip Hvals Andlát: Skúli Steinar Pétursson Bandero siglir utan í skip Hvals Gunnar Þórðarson er látinn Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Fékk ný lungu eftir margra ára veikindi Mikið af mat fargað: „Ekki til fyrirmyndar“ Myndir: Megas lagður til hinstu hvílu Rændu heilum gámi af kampavíni Vélinni hlekktist á í lendingu: Situr pikkföst Birta myndir frá vettvangi: „Aðgerðin heppnaðist“ Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Bandero siglir utan í skip Hvals Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Gunnar Þórðarson er látinn Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“