Úrvalsvísitalan hækkaði um tæplega 0,6% í 1,9 milljarða króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag. Þrettán félög aðalmarkaðarins hækkuðu í viðskiptum dagsins og sjö lækkuðu. Mesta veltan, eða um 810 milljónir króna, var með hlutabréf Haga sem lækkuðu um 0,8% í veði. Gengi Haga stendur nú í 119 krónum á hlut og er um 4% hærra en í upphafi árs. Hlutabréfaverð Alvotech tók stökk eftir opnun markaða vestanhafs og hækkaði um 7,7% eftir hádegi. Gengi hlutabréfa líftæknilyfjafyrirtækisins stendur nú í 476 krónum á hlut og hefur ekki verið hærra síðan í meira en mánuð. Sjá einnig FDA lýkur úttekt hjá Alvotech án frekari athugasemda Gengi Alvotech hefur hækkað um 22% frá því að félagið tilkynnti á miðvikudaginn um að Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna (FDA) hefði formlega lokið úttekt á framleiðsluaðstöðu fyrirtækisins sem fram fór í maí síðastliðnum án frekari athugasemda. Hlutabréf málmleitarfyrirtækisins Amaroq voru í morgun tekin til viðskipta á aðalmarkaði Kauphallarinnar í London, en félagið hafði áður verið skráð á AIM-vaxtamarkaðnum í London. Sjá einnig Amaroq hækkar eftir skráningu á aðalmarkað Lundúna Gengi félagsins á breska markaðnum hækkaði um 2% í fyrstu viðskiptum en lækkaði aðeins þegar leið á daginn og endaði í 105 pensum á hlut, óbreytt frá fyrri degi. Gengi Amaroq í kauphöll Nasdaq á Íslandi hækkaði um 1,1% og endaði daginn í 176 krónum á hlut.