Áform um að hefja rekstur Niceair hér á landi á ný hafa verið sett á ís. Félagið, sem er í dag stýrt af þýska athafnamanninum Martin Michael, hefur ákveðið að hefja ekki áætlunarflug til eða frá Íslandi á ný fyrr en í fyrsta lagi árið 2027. Félagið mun því ekki sinna flugi til landsins það sem eftir lifir sumars 2026 né yfir vetraráætlunina 2026–2027. Í tilkynningu félagsins segir að ákvörðunin hafi verið tekin að lokinni ítarlegri yfirferð á rekstrarumhverfinu. Þrátt fyrir að eftirspurn eftir flugferðum sé áfram góð á mörgum mörkuðum í Evrópu sé alþjóðlegt efnahagsástand enn of ótryggt til að styðja við rekstur til Íslands. Niceair nefnir sérstaklega áframhaldandi óvissu vegna Írans, sem hafi valdið miklum sveiflum á alþjóðlegum orkumörkuðum og leitt til óvenju hás og ófyrirsjáanlegs eldsneytisverðs. Jafnframt segir félagið að rekstrar- og viðskiptaaðilar hafi reynst mun varfærnari en búist var við. „Þrátt fyrir uppbyggilegar viðræður eru margir samstarfsaðilar okkar um þessar mundir ekki tilbúnir að skuldbinda sig til langtímasamstarfs eða taka á sig aukna rekstraráhættu við núverandi markaðsaðstæður. Það hefur verulega takmarkað möguleika okkar á að byggja upp stöðugan og rekstrarlega sjálfbæran flugrekstur til og frá Íslandi á næstu mánuðum,“ segir í tilkynningu. Félagið hyggst í staðinn einbeita sér að leiðakerfi sínu á meginlandi Evrópu í vetur, þar sem það segir rekstrarskilyrði hagstæðari og stuðning samstarfsaðila meiri. NICEAIR segist áfram telja mikilvægt að Akureyri njóti öflugra flugsamgangna, en muni ekki snúa aftur á íslenskan markað fyrr en rekstrarforsendur séu orðnar stöðugri og endurkoma sé talin sjálfbær. Tilkynnt var í lok síðasta árs um áform um endurreisn Niceair, sem varð gjaldþrota árið 2023 eftir tæplega árs rekstur. Martin Michael, sem þá var fulltrúi félagsins í Þýskalandi, sagðist ætla að endurvekja flugfélagið. Eftir að jómfrúarflugi, sem átti að fara í loftið 19. febrúar á þessu ári var aflýst, var stefnt að því að hefja flugrekstur síðar á árinu.