Security News

Cybersecurity news aggregator

⚔️
MEDIUM Attacks Mbl Innlent

Stofnuðu skipverjum í hættu og sýndu mótþróa

  • What: Ships in danger and showing resistance
  • Impact: Potential safety risks for crew and authorities
Read Full Article →

Innlent | mbl | 31.7.2026 | 12:30 Stofnuðu skipverjum í hættu og sýndu mótþróa Sérsveitarmenn í Sundhöfn. mbl.is/Anton Brink Valgerður Birna Magnúsdóttir [email protected] Setja bókamerki Landhelgisgæslan veitti skipinu Bandero eftirför í gærkvöldi eftir að áhöfnin neitaði að stöðva skipið. Áhöfnin hafði sýnt ógnandi tilburði við íslenska sjómenn innan 12 mílna landhelgi landsins og stofnaði siglingaröryggi og mannskap í hættu. Að sögn forstjóra Landhelgisgæslunnar er nokkuð ljóst að þeim nítján skipverjum sem eru um borð verði haldið í gæslu í skipinu þangað til nógu mannmargt verður hjá Landhelgisgæslunni, sem verður ekki fyrr en eftir Verslunarmannahelgina. Frétt af mbl.is Skipverjum haldið í Bandero fram yfir helgi „Þeir sýndu mótþróa. Þeir neituðu að hægja á skipinu og héldu fullri ferð, þannig að það var hættuför fyrir okkar menn og lögregluna að fara þarna um borð,“ segir Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, í samtali við mbl.is. Georg Lárusson veitti blaðamanni mbl.is viðtal við skipið Bandero í Sundahöfn. mbl.is/Anton Brink „Þetta var nánast eins og í James Bond-mynd. En allavega gekk þetta vel og okkar menn, sérsveitarmenn og séraðgerðarmenn Landhelgisgæslunnar yfirtóku stjórn skipsins.“ Frétt af mbl.is Myndskeið: „Nánast eins og í James Bond-mynd“ Ógnandi tilburðir Banderos Georg segir að Landhelgisgæslunni hafi borist fyrsta útkall vegna skipsins um hálfsexleytið í gær. „Við fengum fregnir af erlendu skipi sem var komið inn fyrir 12 mílna landhelgismörkin og var þar með ógnandi tilburði við íslenska sjómenn og stofnuðu siglingaröryggi og mannskap í hættu,“ segir Georg. Undirbúningur Landhelgisgæslunnar hófst þegar henni bárust fyrstu upplýsingar um tilburði Banderos og skarst hún loks í leikinn þegar ljóst var orðið að skipverjar myndu ekki hlýða ítrekuðum tilmælum gæslunnar. „Við skárumst í leikinn eftir ítrekaðar áminningar um að stöðva skipið, svara uppköllum. Þá var skipstjóra þessa erlenda skips tilkynnt að hann yrði stöðvaður með valdi, nema hann breytti strax, sem hann gerði ekki,“ segir Georg. „En það var ekki einungis það að hann hlýddi ekki fyrirmælum heldur gaf hann ekki upp staðsetningar þannig að við vissum ekkert hvar hann var í rauninni.“ Frétt af mbl.is Sérsveitin og Gæslan tóku yfir stjórn Bandero Áhöfn Bandero gaf ekki upp staðsetningu sína, sem erfiðaði Landhelgisgæslunni að hafa uppi á skipinu. mbl.is/Anton Brink Neituðu að hægja á skipinu Segir Georg að skipstjóra Bandero hafi þá verið gert ljóst að skipið yrði stöðvað. Var lagt af stað frá varðskipinu Freyju rétt eftir klukkan 23 og Bandero siglt uppi. Þar hafi skipverjar sýnt mótþróa. „Þeir neituðu að hægja á skipinu og héldu fullri ferð þannig að það var hættuför fyrir okkar menn og lögregluna að fara þarna um borð. Þetta var nánast eins og í James Bond-mynd, en þetta gekk allavega vel. Okkar menn, sérsveitarmenn og séraðgerðarmenn Gæslunnar, tóku yfir stjórn skipsins og eftir það reyndust áhafnarmenn samvinnuþýðir.“ Frétt af mbl.is Birta myndir frá vettvangi: „Aðgerðin heppnaðist“ Sérsveit hefur viðbragð við Bandero þar sem skipið er komið til hafnar. mbl.is/Anton Brink Hefðu aldrei getað stungið Gæsluna af Aðspurður hvort einhvern tímann hafi litið út fyrir að Bandero gæti stungið Landhelgisgæsluna af segir Georg að það hafi aldrei verið raunverulegan möguleika. „Við erum gríðarlega vel búin tækjum og þjálfuðum mannskap þannig að það var aldrei nein spurning. Þetta var bara spurning um tíma og hvenær við teldum heppilegt að fara um borð.“ Greint var frá því í gærkvöldi að einn af léttabátum Bandero hefði siglt utan í Hval 9 en Landhelgisgæslan gat ekki staðfest það með óyggjandi hætti. Frétt af mbl.is Hvalur 9 virðist stefna aftur út á haf Reyndu að kasta netatrossum í skrúfu Hvals 9 Aðspurður segist Georg ekki þekkja til ásiglinga en segir skipverja Bandero tvisvar hafa reynt að kasta annaðhvort netatrossum eða landfestingartrossum í skrúfu Hvals 9 og þannig skapað verulega hættu. Til allrar lukku hafi skipstjóra Hvals 9 tekist að stýra bátnum frá. „En það er mjög alvarlegt að gera svona úti á reginhafi,“ segir Georg. „Landhelgisgæslunni ber að gæta að fullveldi Íslands á hafinu í kringum landið.“ Landhelgisgæslumenn stigu um borð í Bandero fyrr í morgun, en aðgerðum hefur verið stýrt úr varðskipinu Freyju undanfarnar klukkustundir. mbl.is/Anton Brink Ljóst að aðgerðir dragist yfir helgi Georg segir skipið nú í umsjá lögreglu, en þar sem verslunarmannahelgin hefjist á morgun og hvorki sé mannmargt hjá Landhelgisgæslunni né lögreglu sé það ljóst aðgerðir lögreglu við að færa skipverjana til lands gætu dregist á langinn. „Ég held að það sé nokkuð ljóst að þetta taki lengri tíma en helgina.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Fá að minnsta kosti tíu leikja bann Stofnuðu skipverjum í hættu og sýndu mótþróa Fyrrum YouTube-stjarna sýknuð af ákæru um naugðun Ákvörðun íslensku þjóðarinnar Fimm Íslendingar á HM Umræðan Hindranir og hagvöxtur í litlu hagkerfi Fullveldi og fjárhagslegt sjálfstæði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Enginn í haldi: Tilkynnt um minka í 5 km fjarlægð Hvalur 9 virðist stefna aftur út á haf Inngrip auðveld innan landhelgi Stofnuðu skipverjum í hættu og sýndu mótþróa Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveitin og Gæslan tóku yfir stjórn Bandero Inngrip auðveld innan landhelgi Var í afneitun vegna versnandi heilsu Myndir: Ísjakinn í Skagafirði bráðnar í kvöldsólinni Myndir: Bandero kominn til hafnar Forstjóri Gæslunnar mættur og brúin sígur Afdrif stúkunnar ráðast fljótlega Bandero siglir utan í skip Hvals Birta myndir frá vettvangi: „Aðgerðin heppnaðist“ Vélinni hlekktist á í lendingu: Situr pikkföst Andlát: Skúli Steinar Pétursson Bandero siglir utan í skip Hvals Gunnar Þórðarson er látinn Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Fékk ný lungu eftir margra ára veikindi Mikið af mat fargað: „Ekki til fyrirmyndar“ Myndir: Megas lagður til hinstu hvílu Rændu heilum gámi af kampavíni Vélinni hlekktist á í lendingu: Situr pikkföst Birta myndir frá vettvangi: „Aðgerðin heppnaðist“ Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Bandero siglir utan í skip Hvals Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Gunnar Þórðarson er látinn Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“ Nýjast á mbl.is » Fá að minnsta kosti tíu leikja bann Stofnuðu skipverjum í hættu og sýndu mótþróa Fyrrum YouTube-stjarna sýknuð af ákæru um naugðun Ákvörðun íslensku þjóðarinnar Fimm Íslendingar á HM Umræðan Hindranir og hagvöxtur í litlu hagkerfi Fullveldi og fjárhagslegt sjálfstæði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mikið af mat fargað: „Ekki til fyrirmyndar“ Hvalur 9 virðist stefna aftur út á haf Minnast Gunnars: „Maður hélt niðri í sér andanum“ Gekkst undir lungnaígræðslu 27 ára Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveitin og Gæslan tóku yfir stjórn Bandero Inngrip auðveld innan landhelgi Var í afneitun vegna versnandi heilsu Myndir: Ísjakinn í Skagafirði bráðnar í kvöldsólinni Myndir: Bandero kominn til hafnar Forstjóri Gæslunnar mættur og brúin sígur Afdrif stúkunnar ráðast fljótlega Bandero siglir utan í skip Hvals Birta myndir frá vettvangi: „Aðgerðin heppnaðist“ Vélinni hlekktist á í lendingu: Situr pikkföst Andlát: Skúli Steinar Pétursson Bandero siglir utan í skip Hvals Gunnar Þórðarson er látinn Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Fékk ný lungu eftir margra ára veikindi Mikið af mat fargað: „Ekki til fyrirmyndar“ Myndir: Megas lagður til hinstu hvílu Rændu heilum gámi af kampavíni Vélinni hlekktist á í lendingu: Situr pikkföst Birta myndir frá vettvangi: „Aðgerðin heppnaðist“ Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Bandero siglir utan í skip Hvals Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Gunnar Þórðarson er látinn Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“

Share this article