Landhelgisgæsla Íslands og sérsveit ríkislögreglustjóra fóru um borð í Bandero, skip Paul Watson-samtakanna, í kvöld og handtóku skipstjórann og tóku yfir stjórn skipsins. Skipinu verður siglt til hafnar í Reykjavík. Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að áhöfn hvalveiðiskipsins Hvals 9 hafi óskað eftir aðstoð fyrr í kvöld þar sem hún taldi öryggi sínu ógnað. Jafnframt hafi skipstjóri Banderos ekki hlýtt fyrirmælum Gæslunnar. Fyrr í dag greindu Paul Watson-samtökin frá því að Bandero hefði siglt utan í Hval 9 og að hvalveiðiskipið hefði hætt veiðum og haldið í höfn. Landhelgisgæslan staðfesti að Bandero hefði nálgast Hval 9 og reynt að trufla för hans en ekki frásögn samtakanna af árekstri skipanna. Í tilkynningunni kemur fram að stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hafi verið tilkynnt um klukkan sex í kvöld að Bandero hefði siglt inn fyrir 12 sjómílna landhelgi Íslands og stefndi í átt að Hval 9. Varðstjórar skipuðu áhöfn Banderos að fara úr íslenskri landhelgi en við því var ekki orðið. Skipstjóri Bandero fór ekki að fyrirmælum Landhelgisgæslunnar Þyrla Landhelgisgæslunnar, sem var á eftirlitsflugi, var þegar send á vettvang og ítrekaði fyrirmælin án árangurs. Þá var varðskipið Freyja kallað út og skipstjóra Bandero fyrirskipað að stöðva vélar skipsins. Hann varð heldur ekki við þeim fyrirmælum. Sérsveit ríkislögreglustjóra var þá flutt með þyrlu um borð í Freyju og séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar hélt á vettvang á aðgerðabátum. Um miðnættið fóru sveitirnar um borð í Bandero, handtóku skipstjórann og tóku yfir stjórn skipsins. Bandero verður siglt í Sundahöfn í Reykjavík síðar í kvöld. Landhelgisgæslan segir að aðgerðin hafi verið í nánu samstarfi við ríkislögreglustjóra og dómsmálaráðuneytið hafi verið upplýst um framvinduna á öllum stigum.