Security News

Cybersecurity news aggregator

MEDIUM Attacks RÚV

Úkraínuher gerir aðra árás á Wildberries

  • What: Ukraine military attacked a Wildberries distribution center
  • Impact: No injuries, but fire broke out in the building
Read Full Article →

Úkraínski herinn gerði árás á dreifingarstöð netverslunarinnar Wildberries í Volgograd í gær. Enginn særðist í árásinni en eldur kviknaði í byggingunni, segir í færslu sem netverslunin birti á Telegram. Úkraínuher hefur gert nokkrar árásir á Wildberries undanfarið. Fyrsta árásin var gerð á vöruhús netverslunarinnar í Tambov 18. júlí en átta slösuðust í þeirri árás. Á fimmtudaginn greindi fyrirtækið frá því að einn hafi særst og yfir 200 starfsmenn þurfti að yfirgefa vöruhús eftir að eldur braust út eftir drónaárás í vestur Penza-héraði. Þá var önnur árás gerð á vöruhús Wildberries í Sarapul, sem er um 1.100 km austur af Moskvu. Úkraínumenn saka Wildberries um að geyma íhluti í dróna og aðstoða rússneska herinn.

Share this article