Innlent | mbl | 30.7.2026 | 17:00 „Verðum bara eitthvað peð þegar bjátar á“ Anton Berg Sævarsson. Samsett mynd Örn Óskar Pétursson Blöndal [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB „Það þarf bara meiri aga á vinnumarkaði“ 1.600 greitt atkvæði um aðildarviðræður Segir fiskveiðistefnu ESB hafa brugðist Hart tekist á um vexti og atvinnuleysi Varanlegar undanþágur varla í boði » Fleiri tengdar fréttir „Ég trúi því ekki að lausnin felist í því að framselja löggjafarvald, framkvæmdarvald og dómsvald til erlendra stofnana. Lausnin er að við, unga fólkið, fáum að ráða okkar eigin örlögum og marka stefnuna fyrir Ísland.“ Þetta sagði Anton Berg Sævarsson, húsasmiður og annar varaformaður Sambands ungra sjálfstæðismanna, í ræðu sinni á fundi Áfram Ísland á Egilsstöðum 28. júlí sem er hreyfing jákvæðra nei-sinna við inngöngu Íslands að Evrópusambandinu. Blaðamaður sló á þráðinn til Antons en hann er uppalinn á Eskifirði og vinnur í sumar hjá ferðaþjónustunni Mjóeyri á Eskifirði sem er rekin af foreldrum hans. Ókostirnir mun fleiri Í samtali við mbl.is segir Anton að hann hafi verið búinn að mynda sér skoðun á Evrópusambandinu áður en það var orðið ljóst að kosið yrði um framhald aðildarviðræðna að sambandinu í ágúst. „Eftir að ljóst varð að efnt yrði til þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB í ágúst byrjaði ég að skoða málið enn þá betur og varð ég enn þá sannfærðari um það að hagsmunum Íslands sé betur borgið utan Evrópusambandsins. Ég tel að það sé það mikið undir að auðvitað eigi maður að taka þátt í umræðunni og vera óhræddur við að taka slaginn,“ segir hann. Spurður hvort hann telji ungt fólk ekki vilja ræða um ESB segir hann eitthvað til í því eins og önnur mál í þjóðfélagsumræðunni. „Þetta er flókið mál, þannig að maður skilur alveg þetta fólk sem er ekkert mikið inni í þessu, vilji ekki taka umræðuna. Ég hvet alla til þess að gera það og skoða allar hliðar. Það eru alveg einhverjir kostir við að ganga í Evrópusambandið, ég ætla ekkert að neita því en ég tel allavega að ókostirnir séu mun fleiri,“ segir hann. Anton Berg Sævarsson við ræðujöld á fundi Áfram Ísland á Egilsstöðum 28. júlí. Ljósmynd/Aðsend Efla samninga við önnur lönd Spurður hvar helstu áhyggjur hans liggi kveðst hann hafa áhyggjur af framsali ákvörðunarvalds. „Stærstu áhyggjurnar eru að við erum að framselja mjög stórt ákvörðunarvald frá okkur. Maður þekkir það bara þar sem ég bý úti á landi og veit hvernig það er þegar ákvarðanirnar eru teknar langt frá fólkinu sem þær hafa áhrif á. Maður þekkir þetta líka verandi ung manneskja. Ungt fólk er of sjaldan aðalleikendur í ákvörðun sem snýr að ungu fólki. Ég get rétt svo ímyndað mér hvernig það verður þegar ákvörðunarvaldið er komið til Brussel og við verðum bara eitthvað peð þegar eitthvað bjátar á, sem gerist reglulega á Íslandi.” Hann bendir á að Ísland sé nú þegar aðili að EES-samningnum og telur að við séum þegar með alla helstu kostina frá Evrópusambandinu í gegnum þann samning. Í stað þess að taka sæti við borðið hjá ESB ættum við að efla frekar samninga við önnur lönd. „Það má ekki gleyma því að lönd innan Evrópusambandsins eru bara 27. Það eru svo margir sem tala um að við séum að opna svo mikla möguleika að fara inn í Evrópusambandið, en fyrir mér erum við frekar að þrengja vinkilinn enn þá meira við að ganga þarna inn,“ segir hann. Ekkert gefið að vextirnir lækki Hann segir að stærsti misskilningurinn við ESB-umræðuna hér á landi sé að vextirnir muni lækka strax við inngöngu í ESB og upptöku evrunnar. „Það er ekkert gefið að vextirnir muni lækka. Það getur alveg vel verið að það geri það, en það er þá eftir að við erum búin að taka ákvarðanir hérna heima og taka á ríkisfjármálunum hjá okkur. Ég held að stærsti misskilningurinn sé sá að við séum að fara að opna samninginn og þar getum við ákveðið vextina,“ segir hann. „Umræðan núna er rosalega hörð, það eru miklar öfgar í báðar áttir og fólk vill kasta alls konar fullyrðingum fram. Ég vil bara hvetja fólk, sérstaklega ungt fólk, til þess að kanna sér málin sjálft, af því að þetta eru yfirleitt gögn og staðreyndir sem eru bara mjög aðgengileg hjá Evrópusambandinu sjálfu eða einhvers staðar á netinu.“ Tengdar fréttir Ísland og ESB „Það þarf bara meiri aga á vinnumarkaði“ 1.600 greitt atkvæði um aðildarviðræður Segir fiskveiðistefnu ESB hafa brugðist Hart tekist á um vexti og atvinnuleysi Varanlegar undanþágur varla í boði » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ísland stefnir á Riyadh Myndir: Tröppur Grafarvogskirkju málaðar að nýju Ilves - Stjarnan, staðan er 1:0 „Verðum bara eitthvað peð þegar bjátar á“ Vestri – RFS kl. 18, bein lýsing Umræðan Áður en lagt er af stað Við vitum nú þegar meira en nóg Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Framtíð salarins óljós: „Megum ekki láta þetta gerast“ Ming Ting færð í gæsluvarðhald Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Fékk engar útskýringar á tvöfalt hærri kröfu Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Skúli Steinar Pétursson Gunnar Þórðarson er látinn Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Fékk ný lungu eftir margra ára veikindi Rændu heilum gámi af kampavíni Mikið af mat fargað: „Ekki til fyrirmyndar“ Unnið að brottvísun sex vasaþjófa úr landi Beint: Megas jarðsunginn Vöruðu við nýju landamærakerfi Gríðarlegt tjón: „Þetta eru hryðjuverk“ Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Vaknaði við minka í garðinum „Við erum alltaf að fá ný og ný vandamál í fangið“ Lætur af störfum sem forstjóri Hrafnistu Nokkur hundruð minka sluppu frá minkabúi Allt bendir til innbrots: 10 til 12 þúsund minkar „Þetta gæti farið verr en menn halda“ Nágranni: Mun hafa áhrif á öll dýr í mörg ár „Hrein og bein hryðjuverk á íslenskri náttúru“ „Þetta er ófremdarástand“ Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Íslendingum sendur tónninn Andlát: Skúli Steinar Pétursson Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann Nýjast á mbl.is » Ísland stefnir á Riyadh Myndir: Tröppur Grafarvogskirkju málaðar að nýju Ilves - Stjarnan, staðan er 1:0 „Verðum bara eitthvað peð þegar bjátar á“ Vestri – RFS kl. 18, bein lýsing Umræðan Áður en lagt er af stað Við vitum nú þegar meira en nóg Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mikið af mat fargað: „Ekki til fyrirmyndar“ Bílvelta í Tálknafirði: Rúðan mölbrotin Framtíð salarins óljós: „Megum ekki láta þetta gerast“ Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Skúli Steinar Pétursson Gunnar Þórðarson er látinn Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Fékk ný lungu eftir margra ára veikindi Rændu heilum gámi af kampavíni Mikið af mat fargað: „Ekki til fyrirmyndar“ Unnið að brottvísun sex vasaþjófa úr landi Beint: Megas jarðsunginn Vöruðu við nýju landamærakerfi Gríðarlegt tjón: „Þetta eru hryðjuverk“ Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Vaknaði við minka í garðinum „Við erum alltaf að fá ný og ný vandamál í fangið“ Lætur af störfum sem forstjóri Hrafnistu Nokkur hundruð minka sluppu frá minkabúi Allt bendir til innbrots: 10 til 12 þúsund minkar „Þetta gæti farið verr en menn halda“ Nágranni: Mun hafa áhrif á öll dýr í mörg ár „Hrein og bein hryðjuverk á íslenskri náttúru“ „Þetta er ófremdarástand“ Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Íslendingum sendur tónninn Andlát: Skúli Steinar Pétursson Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann