Security News

Cybersecurity news aggregator

HIGH Attacks RÚV

Níu drepnir og fjórtán særðust í drónaárás í Súdan

This article describes a kinetic warfare threat, not a software vulnerability. The primary attack vector is the use of drone strikes by the Rapid Support Forces (RSF) against civilian targets in Sudan, specifically in the North Kordofan region. The summary details the severe humanitarian impact, including mass casualties, displacement, and alleged war crimes, but provides no technical details relevant to IT security systems, CVSS scores, or software patches.
Read Full Article →

Níu voru drepnir og fjórtán særðust í drónaárás RSF-uppreisnarhersins á þorp í Norður-Kordofan í Súdan í gærmorgun. RSF-uppreisnarherinn reynir að umkringja borgina El-Obeid og Sameinuðu þjóðirnar óttast að gerð verði mikil árás á borgina. Uppreisnarherinn hefur reynt að ná tökum á Norður-Kordofan-héraði í nokkra mánuði. Yfir þúsund almennir borgarar hafa verið drepnir í drónaárásum þar á þessu ári í átökum uppreisnarhersins og súdanska hersins. Bæði súdanski herinn og RSF uppreisnarherinn eru sakaðir um grimmdarverk í stríðsátökunum í Súdan sem hafa staðið yfir síðan í apríl 2023. Talið er að yfir 200 þúsund hafi verið drepin í átökunum. Tugir milljóna eru á flótta og þurfa mataraðstoð. Kynferðisofbeldi og pyntingum er beitt með skipulögðum hætti og ástandinu í landinu hefur verið lýst sem verstu mannúðarkrísu heims um þessar mundir. RSF-uppreisnarherinn hefur framið mikil ódæðisverk í Darfur-héraði og Sameinuðu þjóðirnar segja þau bera einkenni þjóðarmorðs. Sameinuðu þjóðirnar hafa ítrekað kallað eftir því að öllum árásum verði hætt tafarlaust, að aðgangur að mannúðaraðstoð verði tryggður og vernd borgara og innviða sett í forgang.

Share this article