Hátíðardagskrár, vegalengdir og veðurspár eru meðal þess sem fólk tekur með í reikninginn fyrir ferðalög helgarinnar. Um þrír fjórðu landsmanna búa á suðvesturhorninu og þar þarf ekki að fara fet til að skemmta sér um verslunarmannahelgina. Þurfa ekki að fara langt Innipúkinn hefst í Reykjavík á morgun og þá er líka lokahelgi Hjarta Hafnarfjarðar. Einnig eru nokkrir smærri viðburðir á höfuðborgarsvæðinu eins og Brekkusöngur Regínu Óskar og Svenna í Salahverfi í Kópavogi. Veðurspáin gerir ráð fyrir mögulegri úrkomu norðan- og austanlands en að sólin láti sjá sig um sunnanvert landið. Á sunnudaginn á að vera blíðskaparveður um allt land. Þeir sem vilja ekki fara of langt geta skroppið á hátíð á Flúðum eða kristilegt kotmót í Fljótshlíð og Norræn döff menningarhátíð er á Selfossi að ógleymdum sæludögum KFUM og KFUK í Vatnaskógi. Væntanlega verður einhver straumur um Suðurland þar sem leið margra liggur til Vestmannaeyja á Þjóðhátíð. Miðasala fór hægt af stað en þar sem veðurspáin er góð hefur hún tekið kipp að sögn formanns Þjóðhátíðarnefndar. Aðeins ein stórhátíð verður á Austurlandi, Neistaflug í Neskaupstað, og hefst hún í kvöld. Fjölmennt á Norðurlandi? Margir ætla að vera norðan heiða um helgina og heimsækja Akureyringa, ef marka má orð skipuleggjenda þar. Fjölskylduhátíðin Ein með öllu hefst á morgun og þangað hafa vinsælir listamenn boðað komu sína. Hið sívinsæla unglingalandsmót UMFÍ verður á Sauðárkróki og Síldarævintýri á Siglufirði. Þeir sem vilja skemmta sér vestanvert á Norðurlandi gætu komið við á Norðanpaunki á Laugarbakka, Nábrókinni í Trékyllisvík eða gönguhátíð á Súðavík. Þá verður hátíð í Skrímslasetrinu á Bíldudal og Dalbæjarleikarnir verða á Snæfjallaströnd. Ljóst er að það er margt í boði og margir verða á ferðinni. Vegagerðin segir sennilegt að þetta sé sú stærsta af mörgum stórum ferðahelgum sumarsins. „Bara að aka varlega og taka með sér þolinmæði. Og fylgjast með á umferdin.is. Það koma allar tilkynningar inn þar,“ segir G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar.