Innlent | mbl | 30.7.2026 | 14:35 Enginn í haldi: Tilkynnt um minka í 5 km fjarlægð Tilkynning barst um minka við Skarhólabraut. Skjáskot/Google Eart Flóki Larsen [email protected] Setja bókamerki Lögreglan hefur ekki handtekið neinn í tengslum við innbrot í loðdýrabúið Dalsbú í Mosfellsdal í gærmorgun. Lögreglu barst tilkynning um að minkar hefðu sést við Skarhólabraut í Mosfellsbæ í gær. Þetta segir Hildur Rún Björnsdóttir lögreglufulltrúi í samtali við mbl.is. Hún segir rannsókn á málinu vera í fullum gangi en kveðst ekki geta veitt frekari upplýsingar um málið. Hundruð, ef ekki þúsundir, minka léku lausum hala í kringum minkabúið í gær. Hildur segir þá hugsun óhjákvæmilega koma upp í hugann að brotið tengist fyrri innbrotum í dýrabú á svæðinu. Ekkert sé þó hægt að segja til um það. Fyrr í sumar var brotist inn í svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi og fuglabú Reykabús í Mosfellsdal. Innbrotin eru enn í rannsókn. Frétt af mbl.is Allt bendir til innbrots: 10 til 12 þúsund minkar Frétt af mbl.is Innbrot í Reykjabú: „Ekki dýravelferð að haga sér svona“ Brotist var inn í loðdýrabúið Dalsbú í Mosfellsdal og minkum slept úr búrum, mbl.is/Anton Brink „Við erum að reyna að gera okkar besta“ „Þetta er bara í rannsókn. Þetta gerðist nú bara í gær. Við erum að reyna að gera okkar besta við að upplýsa þetta,“ segir Hildur um rannsóknina. Nú eru þetta nokkur svipuð mál sem hafa komið upp á svipuðu svæði á stuttum tíma. Þá er ég að tala um Reykjabú og Stjörnugrís. Heldur þú að þessi mál gætu tengst? „Það er bara ómögulegt að segja en óhjákvæmilega kemur það upp í hugann.“ Fram hefur komið að gerendur í fyrri innbrotum hefðu skilið eftir stefnuyfirlýsingu á miða á vettvangi. Hildur segist ekki geta upplýst um það hvort miði með yfirlýsingu frá gerendunum hefði fundist á vettvangi. Eruð þið einhverju nær í þeim málum? „Þetta er bara allt í rannsókn og er búið að vera í rannsókn undanfarnar vikur og ýmsir þættir í skoðun.“ Frétt af mbl.is Börn verði ekki látin sofa úti í vögnum Frétt af mbl.is Innbrot tengt dýravelferð leiddi til dauða tíu smágrísa Bóndi Jón Magnús Jónsson, bóndi á Reykjum, með fugl í fangi. Brotist var inn í bú hans fyrr í vetur. mbl.is/Sigurður Bogi Lögreglan ekki lengur við störf í Dalsbúi Hvernig ganga aðgerðir í Dalsbúi? „Lögreglan er sem sagt búin að draga sig út úr aðgerðum þar, þannig að nú er það sveitarfélagið sem sér um allt þarna núna, þá í samvinnu við meindýraeyða eða dýraþjónustu. Ég veit til þess að björgunarsveitin hafi verið þarna í gærkvöldi,“ segir Hildur. „Ekki nema það berist beiðni um að það vanti einhverja hjálp. Þá náttúrulega verðum við við því eins og í gær.“ En hafið þið orðið vör við að minkarnir séu að fara inn í hverfin? „Ég hef nefnilega ekkert heyrt af því. Við vorum náttúrulega að fá eitthvað. Það var tilkynnt um einhverja minka sem voru komnir niður á Staðhólabraut þarna í gær. En ég hef ekki heyrt neitt frekar um að þeir hafi verið komnir lengra.“ „Lögreglan fékk tilkynningu um það að minkar hefðu sést þar. Við fórum ekki á vettvang en það var brugðist við þessu,“ segir Hildur. Skarhólabraut er í um fimm kílómetra fjarlægð frá Dalsbúi. Hún segist ekki vita hvernig málin þróuðust út frá tilkynningunni. Það hafi verið í höndum annarra viðbragðsaðila. Aflífa þurfti fjölda minka í Mosfellsdal í gær. mbl.is/Árni Sæberg Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Skrifar undir metsamning að virði 11,7 milljarða Beint: Megas jarðsunginn Engar gatnaframkvæmdir í Reykjavík í næstu viku Enginn í haldi: Tilkynnt um minka í 5 km fjarlægð Sér fyrir sér 90 til 400 milljarða ábata Umræðan Áður en lagt er af stað Við vitum nú þegar meira en nóg Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mikið af mat fargað: „Ekki til fyrirmyndar“ Hafna bótakröfu Hvítrússanna Ming Ting færð í gæsluvarðhald Framtíð salarins óljós: „Megum ekki láta þetta gerast“ Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Skúli Steinar Pétursson Gunnar Þórðarson er látinn Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Fékk ný lungu eftir margra ára veikindi Rændu heilum gámi af kampavíni Unnið að brottvísun sex vasaþjófa úr landi Vöruðu við nýju landamærakerfi Gríðarlegt tjón: „Þetta eru hryðjuverk“ Þjófarnir eru þjálfaðir og útsmognir Hvetja íbúa til að fylgjast með Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Vaknaði við minka í garðinum „Við erum alltaf að fá ný og ný vandamál í fangið“ Lætur af störfum sem forstjóri Hrafnistu Nokkur hundruð minka sluppu frá minkabúi Allt bendir til innbrots: 10 til 12 þúsund minkar „Þetta gæti farið verr en menn halda“ Nágranni: Mun hafa áhrif á öll dýr í mörg ár „Hrein og bein hryðjuverk á íslenskri náttúru“ „Þetta er ófremdarástand“ Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi Andlát: Skúli Steinar Pétursson 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann Nýjast á mbl.is » Skrifar undir metsamning að virði 11,7 milljarða Beint: Megas jarðsunginn Engar gatnaframkvæmdir í Reykjavík í næstu viku Enginn í haldi: Tilkynnt um minka í 5 km fjarlægð Sér fyrir sér 90 til 400 milljarða ábata Umræðan Áður en lagt er af stað Við vitum nú þegar meira en nóg Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hafna bótakröfu Hvítrússanna Gríðarlega skaðlegt málstað dýravelferðar Rændu heilum gámi af kampavíni Gekkst undir lungnaígræðslu 27 ára Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Skúli Steinar Pétursson Gunnar Þórðarson er látinn Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Fékk ný lungu eftir margra ára veikindi Rændu heilum gámi af kampavíni Unnið að brottvísun sex vasaþjófa úr landi Vöruðu við nýju landamærakerfi Gríðarlegt tjón: „Þetta eru hryðjuverk“ Þjófarnir eru þjálfaðir og útsmognir Hvetja íbúa til að fylgjast með Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Vaknaði við minka í garðinum „Við erum alltaf að fá ný og ný vandamál í fangið“ Lætur af störfum sem forstjóri Hrafnistu Nokkur hundruð minka sluppu frá minkabúi Allt bendir til innbrots: 10 til 12 þúsund minkar „Þetta gæti farið verr en menn halda“ Nágranni: Mun hafa áhrif á öll dýr í mörg ár „Hrein og bein hryðjuverk á íslenskri náttúru“ „Þetta er ófremdarástand“ Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi Andlát: Skúli Steinar Pétursson 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann