29 langreyðar hafa veiðst það sem af er þessari hvalveiðivertíð, samkvæmt upplýsingum frá Fiskistofu. Síðustu aðgengilegu skráðu landanir eru reyndar frá 28. júlí en verið er að uppfæra gagnasíður Fiskistofu. Hvalur 8 og Hvalur 9 stunda veiðarnar og landa í Hafnarfirði. Framan af hvalveiðivertíðinni var hægagangur í veiðum sem að stærstum hluta mátti rekja til óhagstæðra veðurskilyrða. Erfitt mun að koma auga á blástur hvala í dumbungnum sem ríkti stærstan hluta júlímánaðar. Verulega góð veðurskilyrði þarf til að veiðar gangi vel. Miðað við löndunarstöðu er talsvert í að veiðarnar nálgist útgefnar veiðiheimildir á þessu ári. Vísindaleg ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar og NAMMCO fyrir árið 2026 hljóðaði upp á að veiðar á langreyði yrðu ekki meiri en 150 dýr, þar af 116 dýr á veiðisvæðinu Austur-Grænland/Vestur-Ísland og 34 dýr á svæðinu Austur-Ísland/Færeyjar, sem er um 28% lækkun frá fyrri ráðgjöf. Veiðar hófust á ný í sumar eftir hlé. Hvalveiðiskipið Hvalur 9 fékk fyrstu langreyðarnar við Ísland í tvö ár 23. júní. Síðan þá hefur veiðin haldið áfram og hefur kippur komið í þær undanfarna daga. Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur lýst því yfir að hún vilji draga úr og að lokum hætta hvalveiðum og boðar lagabreytingar. Hún segir hendur sínar bundnar fyrir þetta sumar vegna gildandi reglugerðar Bjarna Benediktssonar, þáverandi forsætis- og matvælaráðherra, um leyfi til Hvals hf. til veiða á langreyðum til fimm ára, sem sett var árið 2024.