Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ekki eðlilegt að ábyrgð á hættulegum vegi sé á herðum sveitarfélags

Read Full Article →

Bæjarfulltrúa í Bolungarvík er ekki rótt að ábyrgð á hættulegum vegi sé á herðum sveitarfélagsins. Ábyrgð á rekstri vegarins um Bolafjall var færð frá utanríkisráðuneytinu og varnarmálasviði Landhelgisgæslunnar til Bolungarvíkurkaupstaðar í vor. Kona ók út af veginum við Bolafjall í gær og bíllinn valt um 200 metra niður fjallið. Betur fór en á horfðist og konan var flutt á sjúkrahúsið á Ísafirði með minni háttar áverka. Varnarmálasvið Landhelgisgæslunnar sinnti viðhaldi vegarins í umboði utanríkisráðuneytisins vegna ratsjárstöðvar á fjallinu. Samningur um að viðhald færi til Bolungarvíkurkaupstaðar var undirritaður í mars. Vill rifta samningnum Baldur Smári Einarsson, bæjarfulltrúi í Bolungarvík, segist vilja rifta samningnum. „Ég get ekki séð að lítið sveitarfélag eins og Bolungarvíkurkaupstaður eigi að bera ábyrgð á öryggi á hættulegum ferðamannavegi eða vegi eins og í þessu tilviki liggur utan í brattri fjallshlíð. Ég get ekki séð að það eigi að vera hjá sveitarfélagi en ekki hjá Vegagerðinni eða ríkinu eins og um alla aðra vegi í landinu,“ segir Baldur. Síðustu ár hefur umferð á veginum stóraukist vegna tilkomu útsýnispalla. Þar sem konan keyrði út af í gær er ekki vegrið. Baldri segist aldrei líða vel þegar hann keyri veginn. „Að mínu mati þá þyrfti að vera vegrið á þessari leið. Ég veit að með þeim samningi sem var gerður í vetur fylgdi ákveðin öryggisáætlun eða framkvæmdaáætlun, þá átti að setja vegrið á þennan kafla á næsta ári,“ segir Baldur. „Það setti að manni óhug í gær þegar maður sá alla viðbragðsaðila rjúka í gegnum bæinn og upp í átt að fjallinu. Þetta er alls ekki einhver staða sem maður fyrir hönd sveitarfélagsins vill, að bera ábyrgð á lífi og limum fólks sem er að ferðast.“

Share this article