Beitir NK kom með 2.200 tonn af kolmunna til Neskaupstaðar á þriðjudaginn og Bjarni Ólafsson AK kom í morgun með 1.400 tonn. Þar með hafa Síldarvinnsluskipin þrjú, Börkur, Beitir og Bjarni Ólafsson, veitt 10.100 tonn af kolmunna í íslenskri lögsögu í júlímánuði. Hafþór Eiríksson, verksmiðjustjóri fiskmjölsverksmiðju Síldarvinnslunnar, segir að veiðin hafi gengið vel, hráefnið sem skipin hafi borið að landi sé gott og afurðirnar í fullu samræmi við það. Ólafur Gunnar Guðnason, skipstjóri á Beiti, var mjög sáttur við aflabrögðin. „Við fengum aflann í þessum túr í sjö holum. Aflinn var frá 200 tonnum og upp í 500 tonn í holi en dregið var frá níu og upp í tuttugu tíma. Við byrjuðum túrinn í Rósagarðinum en vorum mest á Þórsbanka sem er reyndar áfastur Rósagarðinum,“ segir Ólafur Gunnar í samtali við tíðindamann Síldarvinnslunnar. „Fiskurinn sem fékkst var góður eins og hann hefur verið nú í júlímánuði. Við urðum varir við makríl á þessum slóðum og reyndar sáust þarna góðar makríllóðningar. Ég hef ekki séð svona makríllóðningar lengi. Makríllinn heldur sig við yfirborð en á kolmunnaveiðum erum við að toga á 300-400 metrum. Í fyrra fékkst makríll þarna í júlímánuði og þarna er stór fiskur á ferð. Nú verður farið að hyggja að makrílveiðum og þær eru alltaf spennandi,” sagði Ólafur Gunnar. Bjarni Ólafsson var að koma úr sínum fyrsta makríltúr í ár en skipið hafði legið í höfn í Neskaupstað í meira en tvö ár og verið á söluskrá. Ástæðan fyrir því að Síldarvinnslan fer að gera Bjarna Ólafsson út á ný er sú að Barði NK er úr leik vegna eldsins sem kom upp í skipinu fyrr í mánuðinum. Þorkell Pétursson, skipstjóri á Bjarna Ólafssyni, sagði að ýmsum í áhöfninni hefði líkað ágætlega að endurnýja kynnin af gamla skipinu. „Það var verkefni að koma öllu í gang um borð eftir svona langt hlé en nú er allt komið í gott lag. Aflann fengum við í sjö holum en drjúgan hluta túrsins var hundleiðinlegt veður. Við gátum meðal annars ekki verið að í heilan sólarhring vegna brælu. Ég geri ráð fyrir að við höldum áfram á kolmunnaveiðum og það er gott og verðugt verkefni,” sagði Þorkell.