Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Telja rússneska eldflaug hafa hrapað í Póllandi

Read Full Article →

Stjórnvöld í Póllandi telja rússneska eldflaug hafa farið inn í pólska lofthelgi og hrapað í austurhluta landsins í umfangsmiklum loftárásum Rússa á Úkraínu í nótt. Forsætisráðherra Póllands segir atvikið undirstrika mikilvægi stuðnings stjórnvalda þar í landi við Úkraínu. Um tíu metra breiður gígur fannst á akri nærri borginni Lublin í Póllandi í morgun, um 80 kílómetra frá landamærum í morgun. Íbúar í grennd við akurinn höfðu heyrt háværan hvell og var lögregla því kölluð til. Skutu um 20 Kh-101 eldflaugum í nótt Pólsk stjórnvöld telja líklegt að gígurinn hafi myndast þegar rússnesk Kh-101 eldflaug hrapaði. Rússar skutu um tuttugu Kh-101 eldflaugum að Úkraínu í nótt og tvær þeirra voru taldar geta ógnað pólsku landsvæði. Pólsk F-16 orrustuþota var send af stað til að fylgjast með annarri eldflauginni og segja stjórnvöld í Póllandi flugmann þotunnar hafa orðið vitni að því þegar hún hrapaði nærri austurhluta Póllands. Antonion Costa, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins, segir rof á pólskri lofthelgi sýna fram á enn á ný að innrásarstríð Rússlands gegn Úkraínu ógni öryggi allrar heimsálfunnar. Tusk segir næstu 100 daga geta ráðið úrslitum Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, segir yfirvöld í Póllandi í samskiptum við bandamenn sína í NATO vegna atviksins. Hann segir staðfestu landsins í stuðningi við Úkraínu aldrei hafa verið meiri. Öryggi Póllands ráðist með beinum hætti af því hversu vel Úkraínumönnum gangi að verjast árásum Rússa. Tusk segir pólsk stjórnvöld staðráðin í að gera það sem til þarf til að koma í veg fyrir að Úkraína tapi stríðinu. Eftir samtal við Volodymyr Zelensky Úkraínuforseta í gærkvöldi sagði Tusk næstu hundrað daga geta ráðið úrslitum stríðsins. Staðan væri hnífjöfn að hans mati.

Share this article