- What: An opinion piece discusses Iceland's negotiations with the EU
- Impact: The article focuses on political discussions around EU membership
Innlent | Morgunblaðið | 30.7.2026 | 7:00 Aðsend grein: Við vitum nú þegar meira en nóg Baldur Guðlaugsson Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Forvitnum og kappsfullum kjósendum kann að þykja það áhugavert og jafnvel spennandi að fá að komast að því hvað þjóðin kæmist langt í samningum við ESB um þær undanþágur og sérlausnir Íslandi til handa sem m.a.s. áköfustu fylgismenn ESB-aðildar segjast nú munu setja sem skilyrði fyrir endanlegum stuðningi sínum við aðild. En það má aldrei verða að sjálfstæðu markmiði að fá að kíkja í pakkann ef það liggur þegar fyrir að ekki er í boði „pakkalausn“ fyrir framtíðarhagsæld þjóðarinnar. Deilt er um það hversu líklegt sé að ESB muni fallast á að þjóðin fái áfram og til frambúðar að halda þeim yfirráðum yfir sínum auðlindum sem hún hefur nú þegar. Ef til aðildar kæmi væri þetta að sjálfsögðu grundvallaratriði. En eins forvitnilegt og ýmsum kann að þykja að sjá hvað litla Ísland kæmist langt í reiptoginu við Brusselveldið um sín sérmál, þá má ekki gleymast að velsæld þjóðarinnar mun eins og hingað til að stærstum hluta ráðast af þáttum sem liggja utan efnis aðildarsamninga. Það er því fyllsta ástæða til að horfa til þess hvernig Íslandi hefur vegnað í samanburði við ríki ESB og hvernig spáð er þróun næstu ára. Fyrr á þessu ári spáði Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) því að hagvöxtur muni á árunum 2027-2031 verða að meðaltali um 1,44% á ári í ríkjum ESB. Því er spáð að hagvöxtur á evrusvæðinu muni þó verða enn minni á þessu árabili, eða að meðaltali um 1,21% á ári. Sama spá gerir ráð fyrir að hagvöxtur á Íslandi verði umtalsvert meiri, eða að meðaltali um 2,33% á ári. Nú um miðjan ágústmánuð lækkaði AGS raunar hagvaxtarspá sína fyrir evrusvæðið og spáir því nú að hagvöxtur á evrusvæðinu verði einungis 0,9% á þessu ári en hann var 1,4% á síðasta ári. Viðskiptatímaritið Euronews reiknaði nú í vor út á grundvelli spár AGS um heimshorfur í efnahagsmálum fram til ársins 2030 hver yrðu ríkustu lönd Evrópu árið 2030. Niðurstaða þessara útreikninga var að Ísland yrði í 4. sæti þegar horft væri til vergrar landsframleiðslu á mann í evrum og í 8. sæti að teknu tilliti til kaupmáttar (PPP). Þá skal athygli vakin á sérstökum velmegunar- eða hagsældarstuðli, svo nefndum HelloSafe-velmegunarstuðli, fyrir árið 2026, en hann gefur 31 ríki með þróuð hagkerfi einkunnir, byggðar á 5 opinberum vísum sem stafa frá AGS, Alþjóðabankanum, Þróunarstofnun Sameinuðu þjóðanna og Efnahags- og framfarastofnuninni. Í stað þess að einblína á landsframleiðsluna er við gerð þessa velmegunarstuðuls jafnframt horft til lífsgæða, tekjudreifingar og getu hagkerfisins til þess að yfirfæra þjóðarauð yfir í áþreifanlegar umbætur á lífskjörum almennings. Vísarnir sem lagðir eru til grundvallar í ákveðnum innbyrðis hlutföllum eru verg landsframleiðsla á mann að teknu tilliti til kaupmáttar, vergar þjóðartekjur á mann, vísitala um þróun lífsgæða (sem mælir velferð og þróun út frá lífslíkum, menntun og lífskjörum), tekjuójöfnuður (Gini-stuðull) og hlutfall einstaklinga í áhættu á fátækt. Og hvar skyldi nú Ísland raðast á þessum lista yfir „ríkustu“ lönd í heimi? Ísland er í 5. sæti. Í fyrsta sæti er Noregur, síðan kemur Írland, þá Lúxemborg, svo Sviss og þar á eftir Ísland. Singapúr er síðan í 6. sæti. Evrópuríki skipa sem sé fimm efstu sæti listans. Athygli vekur að meiri hluti þessara fimm ríkja er í EFTA, ekki í ESB. Hvað segir framanrakið okkur? Ísland stendur samkvæmt þekktustu alþjóðlegu efnahags- og hagsældarmælikvörðum framar nánast öllum ríkjum ESB. Alkunna er að ríki ESB glíma nú við mikinn innri vanda. Hagvöxtur er minni í Evrópu en í helstu samkeppnisríkjum álfunnar og Evrópa heldur áfram að dragast aftur úr í tækniþróun. Ríki sambandsins líða fyrir alltumlykjandi og lamandi regluverk og stjórnsýslu. Þá ríkir mikil pólitísk óvissa í ýmsum lykilríkjum sambandsins, sbr. stjórnmálaþróunina í Frakklandi og Þýskalandi. Þeir sem hyggjast greiða atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst næstkomandi og hafa verið að velta því fyrir sér hvort nokkuð skaði að sjá hverju aðildarviðræður gætu skilað þjóðinni, ættu að spyrja sig að því hvort það liggi ekki nú þegar nægilega ljóst fyrir að aðildarsamningur við ESB muni ekki fá neinu um það breytt að hagsæld þjóðarinnar verði um fyrirsjáanlega framtíð meiri utan sambandsins en innan. Baldur Guðlaugsson, lögfræðingur. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Rændu heilum gámi af kampavíni Vöruðu við nýju landamærakerfi Fékk ný lungu eftir margra ára veikindi Aðsend grein: Við vitum nú þegar meira en nóg Aðsend grein: Skoðum fyrst, ákveðum svo Umræðan Áður en lagt er af stað Við vitum nú þegar meira en nóg Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skyttur á vaktinni í nótt „Lítið eftir“ af timburhúsinu í Stykkishólmi Svara innbrotahrinunni með átaki og endurnýjun Ming Ting færð í gæsluvarðhald Mest lesið Í gær Í vikunni Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Gríðarlegt tjón: „Þetta eru hryðjuverk“ Hvetja íbúa til að fylgjast með „Lítið eftir“ af timburhúsinu í Stykkishólmi Framtíð salarins óljós: „Megum ekki láta þetta gerast“ Gríðarlega skaðlegt málstað dýravelferðar „Það þarf bara meiri aga á vinnumarkaði“ Fangelsin yfirfull: Varðhald ekki alltaf svarið Veiðimenn beðnir um að mæta ekki á svæðið Skyttur á vaktinni í nótt Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Vaknaði við minka í garðinum „Við erum alltaf að fá ný og ný vandamál í fangið“ Lætur af störfum sem forstjóri Hrafnistu Nokkur hundruð minka sluppu frá minkabúi Allt bendir til innbrots: 10 til 12 þúsund minkar „Þetta gæti farið verr en menn halda“ Nágranni: Mun hafa áhrif á öll dýr í mörg ár „Hrein og bein hryðjuverk á íslenskri náttúru“ „Þetta er ófremdarástand“ Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“ Nýjast á mbl.is » Rændu heilum gámi af kampavíni Vöruðu við nýju landamærakerfi Fékk ný lungu eftir margra ára veikindi Aðsend grein: Við vitum nú þegar meira en nóg Aðsend grein: Skoðum fyrst, ákveðum svo Umræðan Áður en lagt er af stað Við vitum nú þegar meira en nóg Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Nágranni: Mun hafa áhrif á öll dýr í mörg ár Hafna bótakröfu Hvítrússanna Svara innbrotahrinunni með átaki og endurnýjun Mest lesið Í gær Í vikunni Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Gríðarlegt tjón: „Þetta eru hryðjuverk“ Hvetja íbúa til að fylgjast með „Lítið eftir“ af timburhúsinu í Stykkishólmi Framtíð salarins óljós: „Megum ekki láta þetta gerast“ Gríðarlega skaðlegt málstað dýravelferðar „Það þarf bara meiri aga á vinnumarkaði“ Fangelsin yfirfull: Varðhald ekki alltaf svarið Veiðimenn beðnir um að mæta ekki á svæðið Skyttur á vaktinni í nótt Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Vaknaði við minka í garðinum „Við erum alltaf að fá ný og ný vandamál í fangið“ Lætur af störfum sem forstjóri Hrafnistu Nokkur hundruð minka sluppu frá minkabúi Allt bendir til innbrots: 10 til 12 þúsund minkar „Þetta gæti farið verr en menn halda“ Nágranni: Mun hafa áhrif á öll dýr í mörg ár „Hrein og bein hryðjuverk á íslenskri náttúru“ „Þetta er ófremdarástand“ Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“