Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Rændu heilum gámi af kampavíni

  • What: A large shipment of luxury wine was stolen in Rotterdam
  • Impact: The theft involved high-value wine brands like Moët & Chandon and Veuve Clicquot
Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 30.7.2026 | 7:02 | Uppfært 7:17 Rændu heilum gámi af kampavíni Um var að ræða sumarsendingu Ölgerðarinnar og liggur ekki annað fyrir en að gámnum hafi verið rænt. Önnur sending af kampavíni hefur þó skilað sér til landsins í tæka tíð fyrir verslunarmannahelgina. mbl.is/Árni Sæberg Markús Ívar Halldórsson [email protected] Setja bókamerki Ölgerðin varð fyrir óvenjulegu áfalli og tímabundnu kampavínsleysi þegar heill gámur af lúxusvíni sem pantaður hafði verið frá Moët Chandon hvarf sporlaust við stærstu flutningahöfn Evrópu í Rotterdam. Um var að ræða sumarsendingu Ölgerðarinnar og liggur ekki annað fyrir en að gámnum hafi verið rænt. Önnur sending af kampavíni hefur þó skilað sér til landsins í tæka tíð fyrir verslunarmannahelgina. Sendingin var á leið til Íslands og innihélt meðal annars kampavín af tegundunum Moët & Chandon, Veuve Clicquot, Dom Pérignon og rósavínið Whispering Angel. „Við héldum að sendingin væri komin af stað til Íslands en svo kom bara í ljós að það var enginn gámur til að sækja. Flutningsaðilinn greip bókstaflega í tómt þarna úti. Það var búið að ræna allri sendingunni,“ segir Egill Sigurðsson, vörumerkjastjóri hjá Ölgerðinni. Egill Sigurðsson. Þjófar með fágaðan smekk Ölgerðinni barst í kjölfarið tilkynning frá Moët Hennessy með þeim slæmu fregnum að sendingunni hefði verið rænt. Egill segist aldrei hafa lent í öðru eins. Þekkt sé að einstaka kassar eða flöskur hverfi úr sendingum erlendis; afar sjaldgæft sé þó að heill gámur hverfi sporlaust. „Þetta gerist víst öðru hvoru hjá þeim úti hjá Moët Hennessy. Þeir leggja mikið upp úr því að dulbúa sendingarnar sínar þannig að ekki sé hægt að sjá hvað er í þeim en þarna virðast þjófarnir annaðhvort hafa verið mjög vel upplýstir eða einfaldlega haft einstaklega fágaðan smekk,“ segir Egill. Hann hefur starfað hjá Ölgerðinni í 11 ár en man ekki eftir sambærilegu atviki. „Menn hafa lent í seinkunum, skemmdum eða fengið rangar vörur en við höfum aldrei lent í því að sendingin komi einfaldlega ekki af því að henni var stolið.“ „Þjóðin þarf ekki að óttast kampavínslausa helgi“ Egill bætir við að þjófnaðurinn og tilheyrandi kampavínsleysi hafi átt sér stað á versta mögulega tíma. Hann segir ákveðið „kampavínsæði“ ríkja á Íslandi um þessar mundir. Tjónið hleypur á mörgum milljónum króna en Moët Hennessy brást hratt og faglega við. Ný sending var útbúin með skömmum fyrirvara og kom til Íslands á mánudag, í tæka tíð fyrir verslunarmannahelgina. Eftir að fréttir bárust af stuldinum hafði Ölgerðin strax samband við viðskiptavini, upplýsti þá um stöðuna og lagði allt kapp á að hraða nýju sendingunni til landsins. Nú er unnið að því að koma kampavíninu sem kom til landsins á mánudag út á markaðinn. Vel hafi tekist að tryggja að viðskiptavinir yrðu ekki fyrir langvarandi skorti. „Þjóðin þarf ekki að óttast kampavínslausa helgi,“ segir Egill. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Rændu heilum gámi af kampavíni Vöruðu við nýju landamærakerfi Fékk ný lungu eftir margra ára veikindi Aðsend grein: Við vitum nú þegar meira en nóg Aðsend grein: Skoðum fyrst, ákveðum svo Umræðan Áður en lagt er af stað Skoðum fyrst, ákveðum svo Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Allt bendir til innbrots: 10 til 12 þúsund minkar Framtíð salarins óljós: „Megum ekki láta þetta gerast“ „Það er áhyggjuefni“ Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Mest lesið Í gær Í vikunni Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Gríðarlegt tjón: „Þetta eru hryðjuverk“ Hvetja íbúa til að fylgjast með „Lítið eftir“ af timburhúsinu í Stykkishólmi Framtíð salarins óljós: „Megum ekki láta þetta gerast“ Gríðarlega skaðlegt málstað dýravelferðar „Það þarf bara meiri aga á vinnumarkaði“ Fangelsin yfirfull: Varðhald ekki alltaf svarið Veiðimenn beðnir um að mæta ekki á svæðið Skyttur á vaktinni í nótt Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Vaknaði við minka í garðinum „Við erum alltaf að fá ný og ný vandamál í fangið“ Lætur af störfum sem forstjóri Hrafnistu Nokkur hundruð minka sluppu frá minkabúi Allt bendir til innbrots: 10 til 12 þúsund minkar „Þetta gæti farið verr en menn halda“ Nágranni: Mun hafa áhrif á öll dýr í mörg ár „Hrein og bein hryðjuverk á íslenskri náttúru“ „Þetta er ófremdarástand“ Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“ Nýjast á mbl.is » Rændu heilum gámi af kampavíni Vöruðu við nýju landamærakerfi Fékk ný lungu eftir margra ára veikindi Aðsend grein: Við vitum nú þegar meira en nóg Aðsend grein: Skoðum fyrst, ákveðum svo Umræðan Áður en lagt er af stað Skoðum fyrst, ákveðum svo Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Allt bendir til innbrots: 10 til 12 þúsund minkar „Gríðarlega alvarlegt“ „Lítið eftir“ af timburhúsinu í Stykkishólmi Nokkur hundruð minka sluppu frá minkabúi Mest lesið Í gær Í vikunni Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Gríðarlegt tjón: „Þetta eru hryðjuverk“ Hvetja íbúa til að fylgjast með „Lítið eftir“ af timburhúsinu í Stykkishólmi Framtíð salarins óljós: „Megum ekki láta þetta gerast“ Gríðarlega skaðlegt málstað dýravelferðar „Það þarf bara meiri aga á vinnumarkaði“ Fangelsin yfirfull: Varðhald ekki alltaf svarið Veiðimenn beðnir um að mæta ekki á svæðið Skyttur á vaktinni í nótt Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Vaknaði við minka í garðinum „Við erum alltaf að fá ný og ný vandamál í fangið“ Lætur af störfum sem forstjóri Hrafnistu Nokkur hundruð minka sluppu frá minkabúi Allt bendir til innbrots: 10 til 12 þúsund minkar „Þetta gæti farið verr en menn halda“ Nágranni: Mun hafa áhrif á öll dýr í mörg ár „Hrein og bein hryðjuverk á íslenskri náttúru“ „Þetta er ófremdarástand“ Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“

Share this article