- What: Reykjavik updates its surveillance systems and community monitoring efforts
- Impact: Aimed at improving public safety and reducing crime
Innlent | mbl | 29.7.2026 | 21:44 Svara innbrotahrinunni með átaki og endurnýjun Fram undan hjá borginni er nágrannavörsluátak til þess að efla eftirlitsvitund almennra borgara með nærumhverfi sínu, svo og endurnýjun eftirlitsmyndavélakerfis á vegum borgarinnar.. mbl.is/Anton Brink Valgerður Birna Magnúsdóttir [email protected] Setja bókamerki Á íbúafundi í Ráðhúsi Reykjavíkur sem haldinn var síðdegis í dag vegna innbrotahrinu sem geisaði fyrr í mánuðinum í miðborginni kynntu borgarstjóri og öryggisfulltrúi aðgerðir borgarinnar og ráð til þess að verjast innbrotum. Fram undan hjá borginni er nágrannavörsluátak til þess að efla eftirlitsvitund almennra borgara með nærumhverfi sínu, svo og endurnýjun eftirlitsmyndavélakerfis á vegum borgarinnar. „Þetta var góður fundur og við áttum gott samtal við íbúa í lok fundar um þessi innbrot sem íbúar og atvinnurekendur hafa miklar áhyggjur af, þar sem við buðum upp á spurningar, og samtalið var voðalega gott,“ segir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri í samtali við mbl.is að fundi loknum. Frétt af mbl.is Boða íbúa og verslunarmenn til fundar vegna innbrota Borgarstjóri kveðst hafa átt í góðu samtali við þá íbúa sem sátu fundinn. mbl.is/Anton Brink Uppfæra og stækka jafnvel svæðið Í fyrirspurnum íbúa komu meðal annars fram ábendingar um að efla mætti eftirlitskerfi borgarinnar, til að mynda með því að endurnýja eftirlitsmyndavélar á vegum borgarinnar og lögreglu. „Það hefur verið í gildi samningur milli Reykjavíkurborgar, lögreglunnar og Neyðarlínunnar um öryggismyndavélakerfi í miðborginni. Við höfum á síðustu vikum verið í samtali um endurnýjun á þessum samningi,“ segir Hildur, enda sé komið að því að uppfæra myndavélakerfið og jafnvel að stækka eftirlitssvæðið. „Þetta er eitthvað sem við erum bara að vinna í núna þessa daga og þessar vikur og ég vona auðvitað að það leysist fljótt og vel, en samtalið við lögregluna hefur verið gott.“ Frétt af mbl.is Ástandið aldrei verið eins slæmt Koma hefði mátt í veg fyrir hluta brotanna Lögregla greindi frá því á fundinum að koma hefði mátt í veg fyrir hluta brotanna með því að koma þeim þremur aðilum sem í síbrotagæsluvarðhald fyrr, en að ekki hafi verið unnt að grípa til þeirra úrræða vegna þess að fangelsi landsins eru einfaldlega yfirfull. Frétt af mbl.is Innbrotin fyrirbyggjanleg en fangelsin yfirfull Aðspurð um það hvort borgaryfirvöld hefðu viljað fá upplýsingar um að síbrotafólk gengi laust í borginni sem kynni að fremja fleiri innbrot svo hægt hefði verið að hrinda átaki á borð við eflingu nágrannavörslunnar í framkvæmd fyrr segist Hildur sannarlega vilja eiga gott samtal við lögregluna og samtal um þessi atriði. „Ég hef átt í ofsalega góðu samstarfi við lögregluna frá því að ég hóf störf hér í júní og hlakka til áframhaldandi samstarfs. Eins og þau segja þá hafa komið upp tilvik þar sem að ekki er hægt að koma svona síbrotamönnum fyrir í gæsluvarðhald eða álíka úrræði,“ segir hún. „Við þurfum líka að finna leiðir til að brjóta vítahringinn þannig að brotamenn sem að fara í gæsluvarðhald, koma aftur út og halda áfram að brjóta af sér og þar kemur auðvitað velferðarkerfið okkar inn í myndina og þar getum við hjá Reykjavíkurborg stigið inn.“ Frétt af mbl.is „Hann er kominn í fangelsi og búinn að játa brotið“ Límmiðarnir eru fyrsti liður í stærra nágrannavörsluátaki sem borgin hyggst tilkynna nánar hvað fela mun í sér á næstu dögum og vikum. mbl.is/Anton Brink Íbúar fylgist með heimilum hvers annars Borgaryfirvöld útbjuggu á dögunum gátlista með góðum ráðum fyrir heimili til þess að varast innbrotum, sem nálgast má hér , og á fundinum var boðið upp á límmiða merkta nágrannavörslunni sem líma má á glugga. Límmiðarnir eru fyrsti liður í stærra nágrannavörsluátaki sem borgin hyggst tilkynna nánar hvað fela mun í sér á næstu dögum og vikum, en Hildur segir átakið munu byggja á því að nágrannar taki sig saman um að gæta hver að öðrum og fylgjast með heimilum fólks þegar það fer í frí. Á fundinum gerði Eyþór Víðisson, sérfræðingur í öryggismálum, íbúum grein fyrir því hvaða húsnæði væri í mestri innbrotahættu. mbl.is/Anton Brink Á fundinum fór Eyþór Víðisson, öryggisfulltrúi borgarinnar, yfir efni gátlistans, sem segir meðal annars til um að heimili ættu ávallt að vera læst og að verðmæti séu utan sjónlínu, en áþekkan gátlista fyrir fyrirtæki má nálgast á vef Reykjavíkurborgar innan tíðar. Til þess að verjast innbrotum geti íbúar og fyrirtækjaeigendur einnig horft til innbrotalauksins sem sjá má á myndinni hér að neðan, sem aðgengilegur er á vef Reykjavíkurborgar. Innbrotalaukurinn sýnir innbrotavarnir myndrænt. Tafla/Reykjavíkurborg Sýnileg vanræksla og fyrri innbrot auki líkurnar Auk þess gerði Eyþór íbúum grein fyrir því hvaða húsnæði væri í mestri innbrotahættu. „Þegar kemur að innbrotum á heimilum er leiguhúsnæði með hærri líkur á innbrotum þar sem fólk er kannski að stoppa stutt við þar og hugar síður að öryggi. Það að það hafi einhvern tíma verið brotist inn á heimili margfaldar síðan líkurnar á því að það verði brotist þar inn aftur allt að fjórtánfalt,“ sagði hann í fræðsluerindi sínu á fundi gærdagsins. „Síðan eru það heimili þar sem vanræksla er sýnileg – þar sem gróðurinn er þéttur, það er órækt í garðinum, brotin girðing og flagnaðir gluggar – sem gefa ómeðvitað skilaboð um að það sé kannski þægilegra eða auðveldara að brjótast þar inn.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Börn fyrrverandi hjónanna leiða saman hesta sína Svara innbrotahrinunni með átaki og endurnýjun Þróttur tyllti sér á toppinn „Það er áhyggjuefni“ „Lítið eftir“ af timburhúsinu í Stykkishólmi Umræðan Vaxandi vandi ríkisfjármála Evrópu Hvernig metum við það sem skiptir máli? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hafna bótakröfu Hvítrússanna Allt bendir til innbrots: 10 til 12 þúsund minkar Ekki skemmtilegasta starfsemin „Við erum alltaf að fá ný og ný vandamál í fangið“ Mest lesið Í gær Í vikunni „Við erum alltaf að fá ný og ný vandamál í fangið“ Vaknaði við minka í garðinum Lætur af störfum sem forstjóri Hrafnistu Nokkur hundruð minka sluppu frá minkabúi Allt bendir til innbrots: 10 til 12 þúsund minkar „Þetta gæti farið verr en menn halda“ „Hrein og bein hryðjuverk á íslenskri náttúru“ Nágranni: Mun hafa áhrif á öll dýr í mörg ár „Þetta er ófremdarástand“ Minkar lausir í Mosfellsdal: Skothvellir heyrast 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“ Kröftugur skjálfti í Bárðarbungu Hvað ef það verður skýjað 12. ágúst? Myndskeið: Refur át lömb skammt frá þjóðveginum Hnuplaði vörum að andvirði tæprar milljónar króna Hvítrússneskir menn stefna íslenska ríkinu Aðalsteinn gekk á hólm við easyJet Tóku eftir því við lendingu að maðurinn var horfinn Ming Ting dæmd í 12 ára fangelsi Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Ástandið aldrei verið eins slæmt Nýjast á mbl.is » Börn fyrrverandi hjónanna leiða saman hesta sína Svara innbrotahrinunni með átaki og endurnýjun Þróttur tyllti sér á toppinn „Það er áhyggjuefni“ „Lítið eftir“ af timburhúsinu í Stykkishólmi Umræðan Vaxandi vandi ríkisfjármála Evrópu Hvernig metum við það sem skiptir máli? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Svara innbrotahrinunni með átaki og endurnýjun Skyttur á vaktinni í nótt Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Minkar lausir í Mosfellsdal: Skothvellir heyrast Mest lesið Í gær Í vikunni „Við erum alltaf að fá ný og ný vandamál í fangið“ Vaknaði við minka í garðinum Lætur af störfum sem forstjóri Hrafnistu Nokkur hundruð minka sluppu frá minkabúi Allt bendir til innbrots: 10 til 12 þúsund minkar „Þetta gæti farið verr en menn halda“ „Hrein og bein hryðjuverk á íslenskri náttúru“ Nágranni: Mun hafa áhrif á öll dýr í mörg ár „Þetta er ófremdarástand“ Minkar lausir í Mosfellsdal: Skothvellir heyrast 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“ Kröftugur skjálfti í Bárðarbungu Hvað ef það verður skýjað 12. ágúst? Myndskeið: Refur át lömb skammt frá þjóðveginum Hnuplaði vörum að andvirði tæprar milljónar króna Hvítrússneskir menn stefna íslenska ríkinu Aðalsteinn gekk á hólm við easyJet Tóku eftir því við lendingu að maðurinn var horfinn Ming Ting dæmd í 12 ára fangelsi Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Ástandið aldrei verið eins slæmt