Arion banki fékk í byrjun júlí sáttaboð frá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands vegna rannsóknar á mögulegum brotum bankans gegn lögum um aðgerðir gegn markaðssvikum. Fjármálaeftirlitið hefur frá apríl 2024 kannað hvort Arion banki hafi brugðist þeirri skyldu sinni að tilkynna eftirlitinu um grunsamleg viðskipti sem bankinn framkvæmdi fyrir hönd viðskiptavina. Viðskiptin kunna samkvæmt uppgjöri bankans að hafa falið í sér markaðsmisnotkun. Eftirlitið hefur jafnframt kannað hvort bankinn hafi farið að ákvæðum laga um markaði fyrir fjármálagerninga sem lúta að góðum viðskiptaháttum og vernd fjárfesta. Arion banki fékk frumniðurstöðu rannsóknarinnar í lok mars og skilaði sjónarmiðum sínum og andmælum í byrjun maí. Sáttaboðið barst bankanum 7. júlí. Bankinn hefur sex vikur til að taka afstöðu til þess og segist nú hafa það til skoðunar. Ekki kemur fram í uppgjörinu hvað felst í sáttaboðinu eða hvort því fylgi krafa um greiðslu stjórnvaldssektar. Bankinn hefur ekki fært skuldbindingu vegna málsins í uppgjöri sínu. Sáttaboðið felur ekki eitt og sér í sér endanlega niðurstöðu um að bankinn hafi brotið lög.