Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
LOW News Viðskiptablaðið

Olíuverð hækkar í kjölfar árása Írana

  • What: Oil prices rise after Iran attack on US base
  • Impact: Global energy market affected by geopolitical tensions
Read Full Article →

Heimsmarkaðsverð á Brent-hráolíu hefur hækkað um 7% eftir að Íranar gerðu óvænta árás á herstöðvar Bandaríkjanna í Jórdaníu í dag. Að sögn Financial Times gæti vaxandi stigmögnun átaka milli ríkjanna leitt til langvinnara stríðs. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur heitið hörðum hefndum gegn Íran eftir það sem hann kallaði óvænta árás á bandarísk hernaðarskotmörk. „Við ætlum að berja líftóruna úr þeim,“ sagði Trump í viðtali við Fox News. Árásin batt enda á nokkurra daga hlé á beinum hernaðaraðgerðum milli ríkjanna, sem hafði róað orkumarkaði. Olíuverð hækkaði skarpt í kjölfar ummæla Trumps. Aukinn hiti og vaxandi átök milli Bandaríkjanna og Íran eru sögð auka hættuna á allsherjarstríði á ný, á sama tíma og þátttaka Sádi-Arabíu og vopnaðra hópa gæti dregið Mið-Austurlönd inn í víðtækari svæðisbundin átök.

Share this article