Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hagnaður Íslandsbanka svipaður og í fyrra

  • What: Iceland's bank reports slightly lower profit in second quarter
  • Impact: Financial performance update for a major Icelandic bank
Read Full Article →

Hagnaður Íslandsbanka á öðrum ársfjórðungi var 7.069 milljónir króna sem er aðeins minna en á sama tíma á síðasta ári. Þá var hagnaður í árshlutanum 7.192 milljónir. Arðsemi árshlutans er einnig svipuð, 13,3% á síðasta ársfjórðungi til samanburðar við 13% árið 2025. Greint er frá þessu í tilkynningu frá Íslandsbanka. Haft er eftir Jóni Guðna Ómarssyni, bankastjóra Íslandsbanka, að afkoma hafi verið traust og í meginatriðum í samræmi við væntingar. „Afkoma af kjarnastarfsemi sýnir að undirstöður rekstrarins eru sterkar. Óvissa í alþjóðlegu umhverfi, sveiflur á erlendum mörkuðum og minni umsvif á innlendum fjármagnsmarkaði höfðu hins vegar neikvæð áhrif á þóknanatekjur á fjórðungnum.“ Stjórnunarkostnaður hækkaði um 800 milljónir Hreinar vaxtatekjur námu 15,3 milljörðum króna á síðasta ársfjórðungi. Það er 1,4 milljarða króna hækkun í samanburði við síðasta ár. Vaxtamunur var 3,4% samanborið við 3,3% 2025. Stjórnunarkostnaður hækkaði um 800 milljónir á milli ára. Á öðrum ársfjórðungi var hann 8,1 milljarður króna samanborið við 7,3 milljarða á síðasta ári. Útlán til viðskiptavina jukust um 14,8 milljarða króna á síðasta ársfjórðungi. Útlán til viðskiptavina námu 1.416 milljörðum króna við lok fjórðungsins. „Rekstur bankans hefur áfram þróast í samræmi við stefnu hans. Á tímabilinu tókum við á móti fjölda nýrra viðskiptavina og eftirspurn eftir nýrri vildarþjónustu bankans hélt áfram að aukast,“ er haft eftir Jóni Guðna. „Jafnframt var góð virkni í skuldabréfa- og hlutabréfamiðlun. Þessar niðurstöður endurspegla styrk viðskiptasambanda bankans og breidd starfseminnar og við hlökkum til að byggja áfram á þessum árangri á komandi misserum.“

Share this article