Framkvæmdir við Hafnarfjarðarveg á Arnarneshálsi eru fyrsta skrefið í gerð nýs hverfis í Garðabæ. Íbúar í nágrenninu gagnrýna áformin. Deiliskipulag Arnarlands, nýs íbúðahverfis í Garðabæ, var samþykkt í bæjarstjórn 6. mars. Landið afmarkast af Hafnarfjarðarvegi til vesturs, Arnarnesvegi til suðurs, Fífuhvammsvegi til austurs og mörkum Garðabæjar og Kópavogs til norðurs. Íbúar í nágrenninu hafa stofnað Facebook-síðu, undir nafninu Arnarland athugasemdir íbúa, þar sem margir lýsa áhyggjum af þéttri og hárri byggð. Um 450 íbúðir verða á reitnum. Tillit tekið til ábendinga í skipulagsferli Almar Guðmundsson, bæjarstjóri í Garðabæ, segir að þrjú ár hafi verið notuð í skipulagsvinnu og á þeim tíma verið tekið tillit til ábendinga og unnið að lausnum. „Það hefur þýtt að við höfum bæði lækkað hæðir húsa mjög mikið, það hefur gerst á atvinnusvæðinu. Atvinnusvæðið hefur verið fært fjær Hafnarfjarðarvegi til að bregðast við kvörtunum um mögulegt skuggavarp og það var rýnt mjög vel í ferlinu.“ Almar telur það skyldu Garðabæjar að þróa hágæðahverfi með góðum og björtum íbúðum og atvinnustarfsemi. „Sem þýðir að Garðbæingar og þeir sem búa hér næst munu eiga þess kost að fara skamman veg til vinnu.“ Framkvæmdir eru hafnar við Hafnarfjarðarveg til að tengja fráveitu- og neysluvatnslagnir í hverfið. Hjáleiðir verða settar upp tímabundið við veginn og verklok eru áætluð 18. ágúst. Skipulagi Arnarlands, nýs hverfis í Garðabæ, hefur verið breytt eftir athugasemdir frá íbúum. Lagning fráveitu- og neysluvatnslagna við Hafnarfjarðarveg er hafin.