- What: Proposed changes to the police structure in Iceland.
- Impact: Local authorities are concerned about the impact on public safety.
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra kynnti í vor fyrirhugaðar breytingar á skipulagi lögreglu. Hún segir að tilgangurinn með breytingunum sé að efla lögregluembættin. Þeim verði fækkað úr níu í fjögur eða fimm. Breytingaráform eru í samráðsgátt stjórnvalda. Húnaþing Vestra var fyrsta sveitarfélagið sem mótmælti þeim. „Við höfum miklar áhyggjur af þessum áformum sem eru kynnt núna í samráðsgáttinni. Það sem við höfum helst áhyggjur af er fyrst og síðast öryggi íbúa,“ segir Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri í Húnaþingi vestra. Hún telur mjög mikilvægt að öflug lögreglustöð sé á Hvammstanga til þess að viðbragðstíma vegna slysa á Holtavörðuheiði sé sem stystur. Fögur fyrirheit sem sést hafa áður Í tilkynningu dómsmálaráðuneytisins segir að með breytingunum eigi lögregluembætti að verða stærri og öflugri. Hvorki eigi að fækka lögreglumönnum né lögreglustöðvum. Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra skiluðu einnig umsögn um breytingaráformin. Þau segja að ítrekað sé minnst á að tilgangur breytinganna sé að efla lögregluna. Það séu fögur fyrirheit en reynsla af slíkum loforðum stjórnvalda sé ekki góð. „Því miður sanna dæmin það ef maður lítur aftur til baka í sögunni. Nærtækasta dæmið eru loforð ríkisins um að taka yfir málefni barna með fjölþættan vanda sem svo var dregið til baka nokkrum mánuðum seinna að stórum hluta til. Maður óttast alltaf þegar kynntar eru svona breytingar og fyrirheitin eru fögur að dæmin sanna að það er ekki alltaf hægt að treysta því,“ segir Unnur Valborg.