Security News

Cybersecurity news aggregator

LOW News RÚV

Málning hefur mögulega borist í Sauðá

  • What: Possible pollution in Sauðá stream.
  • Impact: Authorities are monitoring the situation and ensuring the water is safe.
Read Full Article →

Sveitarfélagið Skagafjörður greindi frá mögulegri mengun í Sauðá við Sauðárkrók á Facebook í dag. Í tilkynningu segir að mögulega hafi komist efni í ána sem berist nú niður með henni. Talið er að málning hafi með einhverjum hætti komist í ána, segir Svavar Sigurðsson heilbrigðisfulltrúi Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra. „Okkur sýnist þetta vera hefðbundin málning en ekki olíumálning, sem betur fer.“ Hvetur bæjarbúa til að hafa samband geti þeir veitt frekari upplýsingar Svavar segir að ekki sé vitað fyrir víst hvað fór í ána og hvetur íbúa eindregið til að veita upplýsingar sem varpa ljósi á málið. „Ef einhver íbúi hefur lent í því að missa eða hella óvart niður málningu þá vil ég gjarnan vita hversu mikið magn það er svo hægt sé að komast til botns í málinu.“ Regnvatn berst í ána í gegnum niðurföll í bænum og heilbrigðiseftirlitið kannaði hvort ummerki væru um að málningu hefði verið hellt í niðurfall. Svo reyndist ekki vera. Svavar segir að mengun hafi ekki verið vandamál í Sauðá hingað til. Áin rennur í farvegi sínum og engir gegnumstraumar hafa áhrif. Mengunin er því staðbundin og það segir Svavar góðar fréttir. Atvikið litið alvarlegum augum Í tilkynningu frá sveitarfélaginu segir að málið sé litið alvarlegum augum. Íbúar og gestir eru beðnir að sýna aðgát og forðast snertingu við vatnið. Fólk sem kann að hafa einhverjar upplýsingar er beðið að hafa samband við Heilbrigðiseftirlit Norðurlands.

Share this article