Hrönn Ólína Jörundsdóttir, forstjóri Matvælastofnunar, segir að ef minkar sleppi út í nærumhverfi Dalbús í Mosfellsdal sé það alvarlegt fyrir nærumhverfið. „Hvort sem er fyrir fuglalíf eða annað dýralíf. Við vonum að sem fæstir sleppi alveg út í umhverfið,“ segir hún. Hrönn segir að í kringum búið séu varnargirðingar sem ættu að koma í veg fyrir það að minkar komist út í umhverfið. Nokkur hundruð minkar sluppu úr Dalbúi í morgun. Innt eftir því hver aðkoma stofnunarinnar er að málinu segir Hrönn að hún sé svipuð og þegar brotist var inn í önnur bú nýlega. „Við vinnum með lögreglunni og fylgjumst með hennar rannsókn. Okkar aðkoma er að meta hvort brotið hafi verið gegn lögum um velferð dýra.“ Fólki er bent á að vera á varðbergi ef það sér minkana. Hrönn segir að gæta þurfi að bæði gælu- og húsdýrum og fara varlega.