Innlent | mbl | 28.7.2026 | 23:09 Fá ekki afhent rafræn gögn í Höfðatorgsmálinu Kareem M. M. Abufarhah, einn ákærðu, við þingfestingu málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í júní. mbl.is/Karítas Kjartan Leifur Sigurðsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Árás á Höfðatorgi Sagðist hafa borið afrískan tannbursta en ekki hníf Kom á bráðamóttökuna í lífshættulegu losti Neita því að hafa ætlað sér að drepa manninn Hrottalegar lýsingar á árásinni á Höfðatorgi Árásin á borði héraðssaksóknara » Fleiri tengdar fréttir Kröfu verjenda í Höfðatorgsmálinu svokallaða um að fá afhent ákveðin rafræn gögn sem ákæruvaldið hefur lagt fram í málinu hefur verið hafnað. Þetta er niðurstaða úrskurðar Landsréttar frá því í síðustu viku en þar með var samhljóða úrskurður héraðsdóms staðfestur. Þrír erlendir karlmenn eru í málinu ákærðir fyrir tilraun til manndráps vegna árásar sem átti sér stað í bílakjallara á Höfðatorgi í mars. Samkvæmt ákæru var ekið á brotaþola á miklum hraða, hann síðan barinn með áhaldi og að lokum stunginn í rasskinn með eggvopni. Frétt af mbl.is Sagðist hafa borið afrískan tannbursta en ekki hníf Byggðu á lögjöfnun Verjendurnir fóru fram á að fá afhent rafræn gögn í málinu, til að mynda afrit af öllum hljóð- og myndupptökum sem varða ákærðu og vitni í málinu. Töldu verjendurnir að þeir ættu rétt á gögnunum á grundvelli lögjöfnunar frá ákvæði laga um meðferð sakamála sem kveður á um rétt verjanda til að fá eintak af skjölum máls. Töldu þeir að með lögjöfnun ætti ákvæðið einnig að ná til rafrænna gagna. Töldu þeir augljóslega þýðingarmikið að þeir hefðu sama aðgang að myndefninu og ákæruvaldið svo að þeir gætu áttað sig á málsatvikum. Silja Rán Arnarsdóttir flytur málið fyrir hönd Héraðssaksóknara en hún sagði í málsástæðum sínum að ákvæði laganna tryggði verjendum rétt til þess að fá eintak af öllum skjölum er tengdust skjólstæðingi sínum og rétt til að kynna sér önnur skjöl málsins. Sagði hún skýr dómafordæmi fyrir því að hljóð- og mynddiskar teldust ekki til skjala. Því ættu verjendurnir aðeins rétt á að kynna sér gögnin en ekki fá þau afhent. Frétt af mbl.is Kom á bráðamóttökuna í lífshættulegu losti Nær aðeins til skjala á pappírsformi Í niðurstöðu úrskurðarins segir að óumdeilt sé að verjendur eigi rétt á því að fá afhent eintök af skjölum máls á pappírsformi, svo og aðstöðu til að kynna sér rafræn gögn sem lögð hafa verið fyrir dóminn. Sagði þá í niðurstöðunni að því hefði verið slegið föstu í dómaframkvæmd að skyldan til afhendingar skjala næði aðeins til skjala á pappírsformi. Að því er varði önnur gögn í máli, eins og myndupptökur, leiði á hinn bóginn af ákvæði laganna að sakborningur og verjandi hans eigi rétt á að hlýða eða horfa á upptökur sem séu meðal gagna málsins. Taldi Landsréttur samkvæmt framansögðu ekki hjá því komist hafna kröfum verjendanna. Tengdar fréttir Árás á Höfðatorgi Sagðist hafa borið afrískan tannbursta en ekki hníf Kom á bráðamóttökuna í lífshættulegu losti Neita því að hafa ætlað sér að drepa manninn Hrottalegar lýsingar á árásinni á Höfðatorgi Árásin á borði héraðssaksóknara » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Fá ekki afhent rafræn gögn í Höfðatorgsmálinu Nýtur þess að vera vondur Vill sjá Haaland taka áhugavert skref „Við erum alltaf að fá ný og ný vandamál í fangið“ Tvær nýjar sánur í Salalaug Umræðan Um fullt að semja Hvers vegna þurfti þá meint samkomulag? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óvissa um afleiðingar bæði jás og neis Meginþorri umsókna renni í gegn Aðalsteinn gekk á hólm við easyJet Kröftugur skjálfti í Bárðarbungu Mest lesið Í gær Í vikunni 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“ Kröftugur skjálfti í Bárðarbungu Hvað ef það verður skýjað 12. ágúst? Myndskeið: Refur át lömb skammt frá þjóðveginum Hnuplaði vörum að andvirði tæprar milljónar króna Aðalsteinn gekk á hólm við easyJet Hvít-rússneskir menn stefna íslenska ríkinu Tóku eftir því við lendingu að maðurinn var horfinn Ming Ting dæmd í 12 ára fangelsi Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslendingum sendur tónninn Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann Banaslys á Þrengslavegi Lilja syrgir Hilmar og þakkar fyrir dýrmætan tíma „Langt síðan að það var skjálfti af þessari stærð“ Vonlaus barátta við Fæðingarorlofssjóð Leita flugmanns eftir tilkynningu um flugslys Leita að manni á sjó: Fjögur útköll á skömmum tíma Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Ástandið aldrei verið eins slæmt Nýjast á mbl.is » Fá ekki afhent rafræn gögn í Höfðatorgsmálinu Nýtur þess að vera vondur Vill sjá Haaland taka áhugavert skref „Við erum alltaf að fá ný og ný vandamál í fangið“ Tvær nýjar sánur í Salalaug Umræðan Um fullt að semja Hvers vegna þurfti þá meint samkomulag? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Innbrotin fyrirbyggjanleg en fangelsin yfirfull Alveg til í að skoða einn loka „draum“ Hnuplaði vörum að andvirði tæprar milljónar króna Merki um að Bárðarbunga sé að þenjast út Mest lesið Í gær Í vikunni 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“ Kröftugur skjálfti í Bárðarbungu Hvað ef það verður skýjað 12. ágúst? Myndskeið: Refur át lömb skammt frá þjóðveginum Hnuplaði vörum að andvirði tæprar milljónar króna Aðalsteinn gekk á hólm við easyJet Hvít-rússneskir menn stefna íslenska ríkinu Tóku eftir því við lendingu að maðurinn var horfinn Ming Ting dæmd í 12 ára fangelsi Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslendingum sendur tónninn Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann Banaslys á Þrengslavegi Lilja syrgir Hilmar og þakkar fyrir dýrmætan tíma „Langt síðan að það var skjálfti af þessari stærð“ Vonlaus barátta við Fæðingarorlofssjóð Leita flugmanns eftir tilkynningu um flugslys Leita að manni á sjó: Fjögur útköll á skömmum tíma Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Ástandið aldrei verið eins slæmt