Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Hvað ef það verður skýjað 12. ágúst?

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 28.7.2026 | 14:45 Hvað ef það verður skýjað 12. ágúst? Við almyrkvann eigum við eftir að finna fyrir því hvernig kólnar og dýrin þagna, eins og á næturnar þegar allt er kyrrt og hljótt. mbl.is/RAX Brynhildur Glúmsdóttir [email protected] Setja bókamerki Landsmenn hafa nú margir tryggt sér svokölluð sólmyrkvagleraugu fyrir miðvikudaginn 12. ágúst þegar fyrsti almyrkvinn verður sýnilegur í Reykjavík síðan 17. júní 1433. En hvað gerist ef það verður skýjað 12. ágúst? Þessari spurningu hafa eflaust margir velt fyrir sér fyrir þennan stórmerkilega dag, þá sérstaklega í kjölfar dapurlegs sumars á höfuðborgarsvæðinu. Blaðamaður Morgunblaðsins sló á þráðinn til Sævars Helga Bragasonar, sem einnig er þekktur sem Stjörnu-Sævar, og spurði við hverju væri að búast ef sólin lætur ekki sjá sig. „Það er mikill misskilningur að þú þurfir alveg heiðskíran himin til þess að upplifa almyrkva á sólu. Ef það er heiðskírt eins og núna, þá er það náttúrlega algjör draumur af því að þá upplifum við allt sem almyrkvi hefur upp á að bjóða og þá sjáum við líka myrkvann sjálfan með eigin augum,“ segir Sævar við Morgunblaðið. Sævar Helgi Bragason. mbl.is/Kristinn Magnússon Magnaðir litir geti birst Skýjaðan almyrkva segir hann þó einnig magnaða og einstaka upplifun. „Það er að segja ef það er alskýjað, að þá skellur á, stysta, skyndilegasta, fallegasta, einstakasta og bara ógleymanlegasta nótt ævinnar, bara algjört myrkur um miðjan dag í eina til tvær mínútur eftir því hvar þú ert.“ Einnig geti heppnin verið með manni í alskugganum og „magnaðir“ litir birst í skýjunum í fjarska, þar sem dagurinn lifir enn þá. „Allir sem hafa upplifað skýjaðan myrkva segja að það sé einstök og algjörlega mögnuð upplifun. Við finnum að það kólnar og við munum líka finna og heyra náttúruna þagna þegar dimmir svona skyndilega. Þannig að alveg sama hvernig viðrar þá verður þetta auðvitað mögnuð og einstök upplifun sem fólk gleymir aldrei.“ Veltur á því hve þykk skýin eru Spurður hvort hægt sé að sjá tunglið færast yfir skýin við slíkar aðstæður segir hann það fara eftir því hve þykk skýin eru, en stundum sjáist sólin í gegnum skýjahuluna ef hún er nægilega þunn. „Þá sérðu kúluna á himninum.“ Þannig geti skýin virkað eins og náttúruleg sólarsía, en ef alskýjað er og þungbúið, jafnvel rigning, þá verður ekki hægt að sjá tunglið fara fyrir sólina. „Við munum samt upplifa myrkrið, þetta mjög stutta og skyndilega myrkur og heyra í dýrunum og svo framvegis,“ en við þessar aðstæður segir hann dýr halda að það sé komin nótt. „Við þurfum ekki fullkomið veður, það er allt í lagi þótt það séu smá ský á lofti. Ef við sjáum í sólina, þá erum við góð. Það þarf bara gat í skýjahuluna. Háský skipta engu máli af því að háský byrgja ekki sýn. Verst er auðvitað ef það er þungbúið en ef það er þungbúið og rigning þá er það samt ógleymanleg og einstök upplifun.“ Árið 2016 fór Sævar til Indónesíu til að upplifa sinn fyrsta almyrkva. Hann var staddur á eyju sem átti að vera einn besti staður á jörðinni til að fylgjast með myrkvanum, meðal annars vegna þess að þar voru miklar líkur á heiðskírum himni. „Svo þegar við vöknum um morguninn, rétt áður en að sólmyrkvinn hefst, þá vöknum við við þann vonda draum að það er alskýjað og þungbúið og grenjandi rigning í nágrenninu. Allt þetta eftir langt ferðalag. Svo opnaðist himininn nægilega vel, svona tíu mínútum fyrir almyrkvann. Þá sást myrkvinn í gegnum skýjahuluna og göt í skýjunum dugðu til. Þannig að maður þarf ekki fullkomið veður. Veðrið getur meira að segja breyst pínulítið meðan á myrkvanum stendur, en það er kannski ekki gott að gera ráð fyrir því hins vegar,“ segir Sævar og hlær. „Það er ekki satt“ Hvað með sólmyrkvagleraugun, hvað gera þau ef það er skýjað? „Ef skýin eru nægilega þunn þá verðurðu að nota gleraugun til þess að fylgjast með deildarmyrkvanum og það er líka eitthvað sem er mjög mikilvægt að koma á framfæri. Af því að það er misskilningur þarna úti um að við eigum alltaf að nota gleraugun, allan tímann, það er ekki satt.“ Sævar útskýrir að gleraugun skuli bara nota á meðan horft sé í átt að sólinni og einhver hluti sólarinnar sjáist, það er að segja deildarmyrkvinn sjálfur. „En við almyrkva tekurðu gleraugun af og horfir með berum augum og svo seturðu þau upp aftur eftir almyrkvann,“ segir Sævar að lokum. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Aflýsa keppni vegna skógarelda: Íslendingar taka þátt Hvað ef það verður skýjað 12. ágúst? KR-ingar fá ungan leikmann Tóku eftir því við lendingu að maðurinn var horfinn Ætlar að áfrýja dómi héraðsdóms Umræðan Um fullt að semja Hvers vegna þurfti þá meint samkomulag? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kröftugur skjálfti í Bárðarbungu Upplýsingagjöf hefði mátt vera betri Hafa lokkað nokkur hundruð pör á eyjuna Meginþorri umsókna renni í gegn Mest lesið Í gær Í vikunni 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Kröftugur skjálfti í Bárðarbungu Hnuplaði vörum að andvirði tæprar milljónar króna Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“ Meginþorri umsókna renni í gegn Myndskeið: Refur át lömb skammt frá þjóðveginum Hafa lokkað nokkur hundruð pör á eyjuna „Þetta er ekki stórskjálftasvæði“ Óvissa um afleiðingar bæði jás og neis Skýjað, skúrir og hellidembur Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslendingum sendur tónninn Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann Banaslys á Þrengslavegi Lilja syrgir Hilmar og þakkar fyrir dýrmætan tíma „Langt síðan að það var skjálfti af þessari stærð“ Vonlaus barátta við Fæðingarorlofssjóð Leita flugmanns eftir tilkynningu um flugslys Leita að manni á sjó: Fjögur útköll á skömmum tíma Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Ástandið aldrei verið eins slæmt 400 metra hár borgarísjaki óvenju nálægt landi Nýjast á mbl.is » Aflýsa keppni vegna skógarelda: Íslendingar taka þátt Hvað ef það verður skýjað 12. ágúst? KR-ingar fá ungan leikmann Tóku eftir því við lendingu að maðurinn var horfinn Ætlar að áfrýja dómi héraðsdóms Umræðan Um fullt að semja Hvers vegna þurfti þá meint samkomulag? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Einn alræmdasti brotamaður Svíþjóðar dæmdur Hafa lokkað nokkur hundruð pör á eyjuna Meginþorri umsókna renni í gegn Enn sár skortur þrátt fyrir fögur fyrirheit Mest lesið Í gær Í vikunni 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Kröftugur skjálfti í Bárðarbungu Hnuplaði vörum að andvirði tæprar milljónar króna Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“ Meginþorri umsókna renni í gegn Myndskeið: Refur át lömb skammt frá þjóðveginum Hafa lokkað nokkur hundruð pör á eyjuna „Þetta er ekki stórskjálftasvæði“ Óvissa um afleiðingar bæði jás og neis Skýjað, skúrir og hellidembur Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslendingum sendur tónninn Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann Banaslys á Þrengslavegi Lilja syrgir Hilmar og þakkar fyrir dýrmætan tíma „Langt síðan að það var skjálfti af þessari stærð“ Vonlaus barátta við Fæðingarorlofssjóð Leita flugmanns eftir tilkynningu um flugslys Leita að manni á sjó: Fjögur útköll á skömmum tíma Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Ástandið aldrei verið eins slæmt 400 metra hár borgarísjaki óvenju nálægt landi

Share this article